Orðið á netinu um Ísland og ESB
31.1.2009 | 16:51
Samkvæmt skoska blaðinu The Press and Journal hafa þarlendir sjómenn ekki gleymt Þorskastríðunum og hlakka nú til að við göngum í Evrópusambandið svo þeir fái aðgang að fiskimiðunum okkar:
We were excluded from Icelandic waters after two Cod Wars in the 1970s when we got a very raw deal. We look to Icelands cap-in-hand approach to the EU to repair some of that with access for us to their fisheries. - Bertie Armstrong, formaður skoska sjómannasambandsins
Þessi ummæli hitta hinsvegar e.t.v. naglann á höfuðið fyrir okkur Íslendinga:
It will be very interesting to see how Iceland handles the fisheries aspect of negotiations because this is a major part of their wealth. - Frank Doran, þingmaður Verkamannaflokksins fyrir Aberdeen North
Breska blaðið The Guardian birti í gær grein undir fyrirsögninni "Iceland to be fast-tracked into the EU" en þar er fjallað um undirbúning sem þegar er í gangi hjá Evrópusambandinu fyrir flýtimeðferð á því sem þeir kalla "væntanlega" aðildarumsókn Íslands. Eftirfarandi ummæli í greininni vöktu sérstaklega athygli mína:
"If Iceland applies shortly and the negotiations are rapid, Croatia and Iceland could join the EU in parallel. On Iceland, I hope I will be busier. It is one of the oldest democracies in the world and its strategic and economic positions would be an asset to the EU." - Olli Rehn, yfirstjórnandi stækkunarmála (útþenslustefnu) ESB
Lausleg þýðing: asset = eign. Olli er þarna m.ö.o. að segja að stjórnunar- og efnahagsleg staða Íslands yrði eign ESB (ekki bara fiskurinn), og að hann vonist til að hafa nóg að gera við verkefni tengd því. Greinin endar svo á eftir farandi orðum: "senior figures in the European commission believe that Reykjavik brings more assets than liabilities to the EU." Staðreynd sem myndi ekki skipta neinu máli nema fyrir einhvern sem sækist eftir efnahagslegum ávinningi.
Netverjinn dermot sem er íbúi í Evrópusambandinu, hefur hins vegar þetta um málið að segja á fréttasíðunni cryptogon.com:
"Wow; theyve sold themselves. I guess the choice was Russia or the EU - which isnt really much of a choice at all. Now the EU will get that nice Naval Base, and massive fishing reserves - for a bargain price.
Message to Icelandic fishermen: get used to massive Spanish trawlers scouring every last living thing out of your waters, and ramming your ships to get to them. Screwed, with a captial S.
On a personal note, as an EU citizen, Ill soon be able to live & work in Iceland. Yay for me."
Í dag berast svo fréttir af því að í Kanada séu til aðilar sem nú velti fyrir sér þeirri hugmynd að beinlínis kaupa Ísland og innlima það sem 11. fylkið. Var aðgangur að fiskimiðum fyrir atvinnulausa sjómenn frá Nýfundnalandi nefndur sérstaklega í því sambandi. Hjálp!
Ég hef fjallað um það áður (og tekið undir með Steingrími J. Sigfússyni) að taka til athugunar möguleikann á myntsamstarfi við Norðmenn sem valkost við Evruna. Samningsstaða okkar í slíku samstarfi yrði sterkari þar sem Norðmenn hafa beinlínis hagsmuni af því að enda ekki einir í álfunni utan ESB og án Evru. Norskir stjórnmálamenn hafa reyndar hingað til ekki viljað taka afstöðu til þessara hugmynda, en þó er ekki útséð með það. Samkvæmt fréttum RÚV í dag hefur orðið sú breyting á að formaður norska Miðflokksins hefur lýst áhuga á málinu með þeim orðum að engin þjóð eigi að þurfa að neyðast til að ganga í ESB vegna efnahagskreppunnar.
![]() |
Skoskir sjómenn vilja að Ísland gangi í ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hárrétt hjá Steingrími
30.1.2009 | 14:26
ESB er ekki lausnin, heldur miklu fremur hluti af orsökinni fyrir vanda okkar, stóðu saman með valdbeitingu og tuddaskap Breta gegn okkur vegna IceSave og Edge.
Og frekar norska Krónu en Evru, staða okkar í slíku gjaldmiðlasamstarfi yrði mun sterkari vegna þess að hagsmunir okkar fara saman á mörgum sviðum þar sem Norðmenn eru beinlínis í samkeppni við Evrusvæðið.
Ástæðan fyrir því að ESB er allt í einu að gefa okkur undir fótinn núna er augljós:
"If Iceland applies shortly and the negotiations are rapid, Croatia and Iceland could join the EU in parallel. On Iceland, I hope I will be busier. It is one of the oldest democracies in the world and its strategic and economic positions would be an asset to the EU."
- Olli Rehn, yfirstjórnandi stækkunarmála (útþenslustefnu) ESB
Eins og í hverju öðru rótgrónu heimsveldi eru hagvexti "gömlu" Evrópuríkjanna takmörk sett, og því sækjast þau eftir að innlima sem flest "nýmarkaðsríki" á borð við Ísland, Eystrasaltslöndin o.fl. Hagnaðurinn og "hagræðið" af útþenslunni verður svo notaður til að niðurgreiða velferðarkerfi stöðnuðu ríkjanna í hjarta álfunnar sem ráða lögum og lofum í ólýðræðislega skipuðum nefndarstjórnum embættismannakerfisins. Þannig er nýlendustefnan endurlífguð í Sovét-líki sem er sveipað þunnri slæðu sýndarlýðræðis!
Til hvers að afsala meiri völdum til Brüssel eða Berlínar? Það er enginn betur til þess fallinn að stjórna Íslandi en við sem þetta land byggjum, enda hefur mesti uppgangstími þjóðarinnar orðið eftir að landið varð fullvalda.
![]() |
Hugnast norska krónan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Öryggis- og alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 14:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hræsni!
30.1.2009 | 11:28
![]() |
Fengjum forgang inn í ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Öryggis- og alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 11:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Falið Vald Framsóknar
29.1.2009 | 19:44
Merkilegt að Framsóknarflokkurinn skuli vera kominn aftur nánast í oddastöðu í íslenskum stjórnmálum. Með því að standa rétt svo í jaðri sviðsljóssins ná þeir að lágmarka pólitíska áhættu af aðkomu sinni að stjórnarsamstarfinu, sem er klókt í ljósi þeirra endurnýjunar sem verið er að gera á ímynd flokksins. Ég hef trú á nýjum formanni og tel að hann verðskuldi tækifæri til að sanna sig, en get þó ekki annað verið dálítið tortygginn gagnvart restinni af flokknum vegna þeirra fyrri verka meðal annars í ríkisstjórn. Ætli framsókn muni kannski halda áfram að stjórna bakvið tjöldin eða setja frekari skilyrði fyrir stuðningi við nýja ríkisstjórn, eftir að hún verður verður tekin til starfa? Sem betur fer mun hún ekki þurfa að starfa lengi á þessum veika grunni sem er til staðar í þinginu.
Styð samt heilshugar ákvörðun um stjórnlagaþing án aðkomu núverandi þingmanna, vona bara að framkvæmdin á því þvælist ekki fyrir nauðsynlegum efnahagsumbótum.
![]() |
Kosið í vor og í haust? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vilhjálm í Fjármálaeftirlitið! BIS í Seðlabankann???
28.1.2009 | 22:57
Ég styð heilshugar þá hugmynd að Vilhjálmur Bjarnason taki við fjármálaeftirlitinu. Ótrúlegt en satt, þá virðist hann hafa staðið sig betur á þeim vettvangi undanfarið en fráfarandi stjórnendur þeirrar stofnunar. Gylfi Magnússon er sagður koma til greina sem viðskiptaráðherra, og muni þá gegna því embætti sem sérfræðingur án þingsætis. Nú er einmitt lag að gera tilraun með slíkt fyrirkomulag sem hlýtur að vera rökréttara en að hafa þar heimspeking, en svo þarf auðvitað að skipta um fleiri í því ráðuneyti ef það á að geta talist laust við óeðlileg hagsmunatengsl.
Már Guðmundsson er orðaður við embætti Seðlabankastjóra. Hann starfaði hjá Seðlabanka Íslands frá árinu 1980 og gegndi stöðu Aðalhagfræðings frá 1994 til 2004 þegar hann hélt til starfa hjá Alþjóðagreiðslubankanum í Basel sem aðstoðarframkvæmdastjóri peningamála- og hagfræðisviðs. (Sjá ársskýrslu Seðlabankans 2004, kafli V bls. 50.)
Már var gestur í þættinum Markaðurinn með Birni Inga þann 1. nóvember 2008, sem hægt er að horfa á hérna.
Á vef Seðlabankans er vinnustað Más lýst þannig:
Alþjóðagreiðslubankinn í Basel Sviss (e. BIS Bank for International Settlements ) var stofnaður 1930 og er elsta alþjóðlega fjármálastofnunin í heimi. Alþjóðagreiðslubankinn í Basel er í eigu fjölmargra seðlabanka. Hann er í senn banki seðlabankanna og mikilvæg rannsókna- og greiningarstofnun á sviðum sem lúta að starfsemi seðlabanka, ekki síst peningamálum og varðandi fjármálastöðugleika. Bankinn er einnig vettvangur margháttaðs alþjóðlegs samstarfs seðlabanka og á sviði eftirlits með fjármálastarfsemi. Nægir í því sambandi að nefna undirbúning reglusetningar um eiginfjárhlutföll banka auk þess sem í bankanum hafa verið bækistöðvar fjármálastöðugleikaráðsins (Financial Stability Forum) sem sett var á laggirnar fyrir nokkrum árum.
Seðlabanki Íslands er hluthafi í Alþjóðagreiðslubankanum í Basel. Fulltrúar Seðlabanka Íslands taka þátt í ýmsu samstarfi á vettvangi BIS.
Meðal verkefna BIS er að setja samræmdar reglur um alþjóðlega bankastarfsemi og þarna eru sérstaklega nefndar til sögunnar reglur um eiginfjárhlufall banka, en þær heyra undir samninga sem kallaðir eru Basel II. Marinó G. Njálsson skrifaði þann 25.10.2008 stórgóðan pistil um hvernig bankastofnanir fóru í kringum þessar reglur með hjálp matsfyrirtækja og blésu út skuldablöðruna í aðdraganda fjármálahrunsins.
Stjórn Alþjóðagreiðslubankans er ekki skipuð neinum smápeðum:
- Formaður: Jean-Pierre Roth, seðlabankastjóri Sviss
- Varaformaður: Hans Tietmeyer, fyrrverandi seðlabankastjóri Þýskalands
- Ben Bernanke, yfir-seðlabankastjóri Bandaríkjanna
- Mark Carney, seðlabankastjóri Kanada
- Mario Draghi, seðlabankastjóri Ítalíu
- Timothy F. Geithner, seðlabankastjóri New York og fjármálaráðherra Bandaríkjanna
- Eddie George, fyrrverandi seðlabankastjóri Englandsbanka
- Stefan Ingves, seðlabankastjóri sænska Riksbankans
- Mervyn King, seðlabankastjóri Englandsbanka
- Jean-Pierre Landau, aðstoðar-seðlabankastjóri Frakklandsbanka
- Christian Noyer, seðlabankastjóri Frakklandsbanka
- Guillermo Ortiz Martinez, formaður, fyrrverandi fjármálaráðherra og seðlabankastjóri Mexíkó
- Guy Quaden, seðlabankastjóri Belgíu
- Masaaki Shirakawa, seðlabankastjóri Japans
- Jean-Claude Trichet, seðlabankastjóri Evrópska Seðlabankans
- Alfons Vicomte Verplaetse, fyrrverandi seðlabankastjóri Belgíu
- Axel A. Weber, seðlabankastjóri Þýskalands
- Nout H. E. M. Wellink, seðlabankastjóri Hollandsbanka
- Zhou Xiaochuan, seðlabankastjóri Kína
- Varamenn:
- Pierre Jaillet & Michel Cardona, Banque de France; Donald L Kohn & D Nathan Sheets, US Federal Reserve; Peter Praet & Jan Smets, NBB; Hermann Remsperger & Wolfgang Mörke, Bundesbank; Fabrizio Saccomanni & Ignazio Visco, Banca D'Italia; Paul Tucker & Paul Fisher, Bank of England.
Eftirfarandi brot úr friðhelgisreglum fyrir starfsmenn Alþjóðagreiðslubankans eru sérlega athyglisverð:
- immunity from arrest or imprisonment and immunity from seizure of their personal baggage, save in flagrant cases of criminal offence;
- inviolability of all papers and documents;
- immunity from jurisdiction, even after their mission has been accomplished, for acts carried out in the discharge of their duties, including words spoken and writings;
- exemption for themselves, their spouses and children from any immigration restrictions, from any formalities concerning the registration of aliens and from any obligations relating to national service in Switzerland ;
- the right to use codes in official communications or to receive or send documents or correspondence by means of couriers or diplomatic bags.
- immunity from jurisdiction for acts accomplished in the discharge of their duties, including words spoken and writings, even after such persons have ceased to be Officials of the Bank;
- BIS, Protocol Regarding the Immunities of the Bank for International Settlements, Basic Texts, (Basle, August 2003)
Nú efast ég ekki um að reynsla Más af þessu starfi geti komið að góðum notum, en samt getur maður ekki annað en spurt: Er það ekki svona lagað sem stóð til að útrýma úr Seðlabanka Íslands?
![]() |
Nær Evrópu með Vinstri grænum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 29.1.2009 kl. 00:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8,77% styrking frá 9. janúar
28.1.2009 | 18:22
Kjósa 21. mars
28.1.2009 | 10:32
Fleiri sökudólgar eða þeir sömu og áður?
28.1.2009 | 01:02
"Stjórnarkreppa" og krónan styrkist!???
28.1.2009 | 00:08
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 00:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Er bankarnir þá eftirlitslausir?
27.1.2009 | 09:20
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Halelúja! Stjórnin fallin
26.1.2009 | 13:39
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ríkisstjórnin að falla og krónan styrkist
26.1.2009 | 11:04
Viðskipti og fjármál | Breytt 28.1.2009 kl. 00:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vilhjálm sem Viðskiptaráðherra
26.1.2009 | 10:43
Lýðræðisveiran brýst út
25.1.2009 | 17:09
Öryggis- og alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 17:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Og víðar er fjallað um Ísland
25.1.2009 | 02:19