Hver er maðurinn? Timothy F. Geithner.

Timothy F. GeithnerÖldungadeild Bandaríkjaþings er um það bil að greiða atkvæði um að staðfesta skipun Timothy F. Geithner í embætti fjármálaráðherra í "ríkisstjórn hinna miklu breytinga". Í ljósi efnahagskrísunnar og stöðu Bandaríkjanna í heimsmálum mun þetta embætti verða afar veigamikið á næstu misserum, og því er kannski við hæfi að átta sig aðeins á því hver maðurinn er.

Hverra manna?

  • Afi hans, Charles F. Moore, var einn af ráðgjöfum Eisenhower forseta og varaforstjóri Ford bílaverksmiðjanna.
  • Faðir hans, Peter F. Geithner, var verkefnastjóri Asíudeildar hjá Ford Foundation.

Námsferill

  • Útskrifaðist 1983 frá Dartmouth College með gráð í stjórnvísindum og Asíufræðum.
  • Lauk 1985 Mastersnámi í alþjóðahagfræði og Austur-Asíufræðum frá Johns Hopkins University.

Aldur: 47

Fyrri störf:

Samhliða opinberum störfum á hann sæti í eftirfarandi "hugveitum":

Helstu "afrek":

  • "Aðgerðastjórn" í fjármálakreppum ýmissa ríkja á síðasta áratug.
    • Brasilía, Mexíkó, Indónesía, Suður-Kóra, Thailand.
  • Hafði "innflutta" húshjálp árið 2005 starfandi lengur en atvinnuleyfi hennar heimilaði.
  • "Láðist" að telja fram og greiða fullan skatt (ca. 40þús. $) af launum sínum hjá IMF.
    • Stóð skil á hluta upphæðarinnar eftir skattrannsókn árið 2006.
    • Greiddi afganginn rétt áður en tilkynnt var um ráðherraskipan 2008.
  • Umsjón með "björgunaraðgerðum" í fjármálakrísunni 2008:
    • Þjóðnýting Bear Stearns bankans (30 milljarðar $) og brunaútsala.
    • Yfirtakan á hinu risavaxna AIG tryggingafélagi (85 milljarðar $).
  • Átti stóran hlut í þeirri ákvörðun að Lehman Brothers bankanum yrði ekki bjargað.
    • Lehman fór svo á hausinn, og tók m.a. íslenska bankakerfið með í fallinu.

Geithner hefur komið víða við og býr vafalaust yfir mikilli reynslu, nánari athugun á nöfnum þeirra aðila sem hann tengist gegnum störf sín er merkileg út af fyrir sig (CFR, Bilderberg, IMF & the Fed). Það hversu "innmúraður" hann virðist vera í ákveðinn valdastrúktúr sem hefur haldið um stjórnartaumana undanfarna áratugi vekur samt óneitanlega upp spurningar um hvort loforð Obama um Breytingar séu kannski orðum aukin?

Aðrir í ríkisstjórn Obama sem tengjast CFR/Bilderberg o.þ.h. (heimild, AFP):

  • Joe Biden - varaforseti (fráfarandi form. utanríkismálanefndar)
  • David Axelrod - aðalráðgjafi (sá sem heldur í strengina???)
  • Hillary Clinton - utanríkisráðherra (say no more!)
  • Susan Rice - sendiherra hjá Sameinuðu Þjóðunum
  • Robert Gates - varnarmálaráðherra (viðriðinn Iran-Contra hneykslið)
  • Janet Napolitano - heimavarnaráðherra (dómsmálaráðherra Clintons)
  • James L. Jones - þjóðaröryggisráðgjafi (í stjórn Chevron & Boeing)
  • Dennis C. Blair - yfirmaður njósnastofnana (Dir. National Iintelligence)
  • Eric Holder - dómsmálaráðherra (fv. aðstoðarráðherra Janet Reno)
  • Bill Richardson - viðskiptaráðherra (fyrrum starfsm. Kissinger assoc.)
  • Paul Volcker - formaður efnahagsbatanefndar (fv. seðlabankastjóri)
  • Lawrence Summer - efnahagsráðunautur (Rockefeller uppalningur)
  • Tom Daschle - heilbrigðisráðherra (fv. kaldastríðsnjósnari)
  • Rahm Emanuel - starfsmannastjóri Hvíta Hússins
    • Benjamin faðir hans var meðlimur í Irgun Zíonistahreyfingunni

Heimildir:


mbl.is Geithner fær staðfestingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband