Kosningar boðaðar og krónan styrkist um 3%

"Fjármálasérfræðingar segja..." að breytingar á ríkisstjórn "...muni ekki hafa áhrif á stöðu krónunnar" en annað segir markaðurinn. Skv. gengisskráningu Seðlabankans styrktist krónan í vikunni um 4%, þar af mest á föstudag þegar boðað var til kosninga, eða um heil 3%.


mbl.is Stjórnarskipti breyta engu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bataóskir til Geirs

Ég óska Geir góðs bata, heilshugar.

Þetta breytir samt engu um kröfurnar um endurnýjun á fleiri stöðum...

Áfram Ísland!


mbl.is Þorgerður: Ég er auðvitað slegin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er maðurinn? Timothy F. Geithner.

Timothy F. GeithnerÖldungadeild Bandaríkjaþings er um það bil að greiða atkvæði um að staðfesta skipun Timothy F. Geithner í embætti fjármálaráðherra í "ríkisstjórn hinna miklu breytinga". Í ljósi efnahagskrísunnar og stöðu Bandaríkjanna í heimsmálum mun þetta embætti verða afar veigamikið á næstu misserum, og því er kannski við hæfi að átta sig aðeins á því hver maðurinn er.

Hverra manna?

  • Afi hans, Charles F. Moore, var einn af ráðgjöfum Eisenhower forseta og varaforstjóri Ford bílaverksmiðjanna.
  • Faðir hans, Peter F. Geithner, var verkefnastjóri Asíudeildar hjá Ford Foundation.

Námsferill

  • Útskrifaðist 1983 frá Dartmouth College með gráð í stjórnvísindum og Asíufræðum.
  • Lauk 1985 Mastersnámi í alþjóðahagfræði og Austur-Asíufræðum frá Johns Hopkins University.

Aldur: 47

Fyrri störf:

Samhliða opinberum störfum á hann sæti í eftirfarandi "hugveitum":

Helstu "afrek":

  • "Aðgerðastjórn" í fjármálakreppum ýmissa ríkja á síðasta áratug.
    • Brasilía, Mexíkó, Indónesía, Suður-Kóra, Thailand.
  • Hafði "innflutta" húshjálp árið 2005 starfandi lengur en atvinnuleyfi hennar heimilaði.
  • "Láðist" að telja fram og greiða fullan skatt (ca. 40þús. $) af launum sínum hjá IMF.
    • Stóð skil á hluta upphæðarinnar eftir skattrannsókn árið 2006.
    • Greiddi afganginn rétt áður en tilkynnt var um ráðherraskipan 2008.
  • Umsjón með "björgunaraðgerðum" í fjármálakrísunni 2008:
    • Þjóðnýting Bear Stearns bankans (30 milljarðar $) og brunaútsala.
    • Yfirtakan á hinu risavaxna AIG tryggingafélagi (85 milljarðar $).
  • Átti stóran hlut í þeirri ákvörðun að Lehman Brothers bankanum yrði ekki bjargað.
    • Lehman fór svo á hausinn, og tók m.a. íslenska bankakerfið með í fallinu.

Geithner hefur komið víða við og býr vafalaust yfir mikilli reynslu, nánari athugun á nöfnum þeirra aðila sem hann tengist gegnum störf sín er merkileg út af fyrir sig (CFR, Bilderberg, IMF & the Fed). Það hversu "innmúraður" hann virðist vera í ákveðinn valdastrúktúr sem hefur haldið um stjórnartaumana undanfarna áratugi vekur samt óneitanlega upp spurningar um hvort loforð Obama um Breytingar séu kannski orðum aukin?

Aðrir í ríkisstjórn Obama sem tengjast CFR/Bilderberg o.þ.h. (heimild, AFP):

  • Joe Biden - varaforseti (fráfarandi form. utanríkismálanefndar)
  • David Axelrod - aðalráðgjafi (sá sem heldur í strengina???)
  • Hillary Clinton - utanríkisráðherra (say no more!)
  • Susan Rice - sendiherra hjá Sameinuðu Þjóðunum
  • Robert Gates - varnarmálaráðherra (viðriðinn Iran-Contra hneykslið)
  • Janet Napolitano - heimavarnaráðherra (dómsmálaráðherra Clintons)
  • James L. Jones - þjóðaröryggisráðgjafi (í stjórn Chevron & Boeing)
  • Dennis C. Blair - yfirmaður njósnastofnana (Dir. National Iintelligence)
  • Eric Holder - dómsmálaráðherra (fv. aðstoðarráðherra Janet Reno)
  • Bill Richardson - viðskiptaráðherra (fyrrum starfsm. Kissinger assoc.)
  • Paul Volcker - formaður efnahagsbatanefndar (fv. seðlabankastjóri)
  • Lawrence Summer - efnahagsráðunautur (Rockefeller uppalningur)
  • Tom Daschle - heilbrigðisráðherra (fv. kaldastríðsnjósnari)
  • Rahm Emanuel - starfsmannastjóri Hvíta Hússins
    • Benjamin faðir hans var meðlimur í Irgun Zíonistahreyfingunni

Heimildir:


mbl.is Geithner fær staðfestingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Austurvöllur, Laugardag kl. 15:00

Ég styð heilshugar yfirlýsinguna frá Röddum Fólksins, áfengi og ákafi eru ávallt hættuleg blanda og því vel við hæfi að leggja niður mótmæli á opnunartíma skemmtistaða. Mótmælendur þurfa auðvitað að skemmta sér líka og vil ég hvetja þá til að gefa lögreglunni (verðskuldað) frí um næstu helgi. Mætum frekar allsgáð og áköf á Austurvöll á laugardaginn kl. 15:00, klædd appelsínugulu.

Lengi lifi byltingin. Áfram Ísland!


mbl.is Á þriðja hundrað á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Níunda-stærsta hagkerfið rambar á barmi gjaldþrots

Efnahagur Kaliforníu er sá stærsti af öllum ríkjum Bandaríkjanna eða um 13% af vergri landsframleiðslu (2007). Ef þetta væri fullvalda ríki hefði það eitt og sér níunda stærsta hagkerfið í heiminum (2006). Nú rambar það hins vegar á barmi gjaldþrots, sem boðar varla gott fyrir framhaldið. Ætli setningin fræga úr Terminator eigi kannski eftir að umbreytast í: "I´ll be broke" ?  ;)


mbl.is Kalífornía á barmi gjaldþrots
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það ER stjórnarkreppa nú þegar!

Það mætti góðfúslega benda ráðherrum ríkisstjórnarinnar á að það er nú þegar pólitísk kreppa á Íslandi. Allt þeirra tal um að "það má ekki kjósa því þá verður stjórnarkreppa ofan á allt saman" er innantómur hræðsluáróður. Stjórnarkreppan er staðreynd og...

Sóttu sjálfviljugir um starfið

Ég veit ekki til þess að neinn hafi þvingað þessa ágætu lögreglumenn til að fara í sérvseitina eða óeirðasveitina, hvað þá að lumbra á saklausum borgurum sem og fréttamönnum, en það gerðu þeir samt (sumir a.m.k.). Hvað eru þeir svo að væla og kvarta!? If...

Geir-laug ?

Hann hélt þessu líka fram helgina sem Glitnir riðaði til falls síðastliðið haust, en síðan þá hefur komið í ljós flest sem bendir til þess að Geir hafi mátt vita betur. Merkilegt að hann skuli vera svona viss núna um stöðu nýju ríkisbankanna, í Kastljósi...

Velkominn í klúbbinn Sigmundur

"...lít í sjálfu sér ekki á það sem mikla höfnun að vera rekinn af manni eins og Ara Edwald." - Sigmundur Ernir Hjartanlega sammála þessu, það er ástæðulaust að taka nærri sér það sem veruleikafirrtir einstaklingar segja og gera. Þetta mun koma Ara...

Byltingunni vex ásmegin

Byltingin hófst í gær. Byltingin náði árangri í dag. Fyrsta orrustan er unnin. Lengi lifi byltingin! Áfram Ísland!

Byltingin hófst í gær

Lengi lifi byltingin! Guð blessi Ísland.

Rafrænar kosningar... Varúð!

Rafrænar kosningar urðu til þess að George W. Bush náði völdum í því sem áður var talið eitt mesta lýðræðisríki í heimi. Síðan þá hefur hinsvegar verið sífellt verið að koma betur í ljós hversu meinlegir gallar eru í vélunum sem voru notaðar, hversu...

Stöðvast væri nær lagi

"Sjóflutningar á heimshöfunum hafa dregist mikið saman. " Tölurnar í fréttinni ná til alls ársins 2008, það sem hefur hinsvegar gerst í þessum bransa síðustu þrjá mánuði á miklu meira skylt við algjöra stöðvun en samdrátt. Gámaflutningar á heimshöfunum...

"Íslenskir bankar standa á traustum grunni!" ???

Svona ummæli létu ýmsir háttsettir aðilar út úr alveg fram í september 2008. En hvernig getur sá sem þannig talar núna ætlast til þess að verða tekinn alvarlega? Ef það er eitthvað sem reynsla undanfarina missera hefur kennt fólki þá er það að taka ekki...

Bandaríkjastjórn stofnar ibúðalánasjóð!

Einhverjum hjá Evrópusambandinu myndi sennilega þykja þetta stórfrétt. Viðskiptablaðið segir frá því að enginn endir virðist vera á bankakreppunni vestanhafs og stjórnvöld íhugi nú stofnun einhverskonar íbúðalánasjóðs eða ríkisbanka sem eigi að yfirtaka...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband