Skuldir nokkurra Evrópuríkja í hlutfalli við framleiðslu
24.12.2009 | 04:19
![]() |
Forsendur IFS-álits svartsýnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt 23.2.2010 kl. 14:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Loftslagsmál: NASA staðfestir áhrif sólar á hitastig
23.12.2009 | 03:18
Í stuttu máli þá er hér vitnað í nýlega fréttatilkynningu frá NASA þar sem kemur fram að staðfest hafi verið tengsl milli virkni sólar og hitastigs í efri lögum lofthjúps Jarðar, en efasemdarmenn um manngerðu hlýnunarkenninguna hafa gjarnan haldið fram mótrökum um áhrif sólarinnar. Sagt er frá mælingum sem sýna fram á mikla kólnun í svokölluðu hitahvolfi á sama tíma og virkni sólar er í sögulegu lágmarki, en búist sé við hlýnun um leið og sólvirkni aukist á ný. Hvaða þýðingu þetta hefur fyrir veðurfar og yfirborðshitastig á jörðinni er hinsvegar annað mál og flóknara vegna lagskiptingar andrúmsloftsins. Auk þess að vera efsta/ysta lagið er hitahvolfið stærst þeirra, það teygir sig frá mörkum miðhvolfsins í 80km hæð upp í 320-380km hæð nálægt sporbaug alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Þessi efsti hluti andrúmsloftsins hefur hingað til verið lítið rannsakaður á þennan hátt en í ljósi þessara niðurstaðna hlýtur að vera nauðsynlegt að skoða betur samspil hitastigs þar og í neðri lögunum sem hitahvolfið umlykur.
NASA Shows Quiet Sun Means Cooling of Earth's Upper Atmosphere
HAMPTON, Va., Dec. 16 /PRNewswire-USNewswire/ -- New measurements from a NASA satellite show a dramatic cooling in the upper atmosphere that correlates with the declining phase of the current solar cycle. For the first time, researchers can show a timely link between the Sun and the climate of Earth's thermosphere, the region above 100 km, an essential step in making accurate predictions of climate change in the high atmosphere.
Scientists from NASA's Langley Research Center and Hampton University in Hampton, Va., and the National Center for Atmospheric Research in Boulder, Colo., will present these results at the fall meeting of the American Geophysical Union in San Francisco from Dec. 14 to 18. ... ... ...
The extent of current solar minimum conditions has created a unique situation for recent SABER datasets. The end of solar cycle 23 has offered an opportunity to study the radiative cooling in the thermosphere under exceptionally quiescent conditions.
"The Sun is in a very unusual period," said Marty Mlynczak, SABER associate principal investigator and senior research scientist at NASA Langley. "The Earth's thermosphere is responding remarkably -- up to an order of magnitude decrease in infrared emission/radiative cooling by some molecules."
The TIMED measurements show a decrease in the amount of ultraviolet radiation emitted by the Sun. In addition, the amount of infrared radiation emitted from the upper atmosphere by nitric oxide molecules has decreased by nearly a factor of 10 since early 2002. These observations imply that the upper atmosphere has cooled substantially since then. The research team expects the atmosphere to heat up again as solar activity starts to pick up in the next year. ... ... ...
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 03:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Hnattræna hlýnunarkenningin
19.12.2009 | 02:03
Ég birti hér viðtal tekið af Christopher Monckton en hann er breskur aðalsmaður, hugvitsmaður, og fyrrum ráðgjafi hjá Margaret Thatcher. Hann fellur tvímælalaust í flokk efasemdarmanna um hnattræna hlýnun, en viðmælandinn er kona sem mótmælir hnattrænni hlýnun í nafni Grænfriðunga. Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki farið yfir allar staðreyndir sem koma fram hjá Monckton en hann virkar allavega mjög sannfærandi þegar hann rekur garnirnar úr konugreyinu.
Til að gæta jafnvægis er svo hérna smá brot sem sýnir að þrátt fyrir allt eru jöklarnir á yfirborði jarðarinnar að taka ansi hröðum breytingum. Menn greinir á um hvort þær séu meiri en dæmi eru um fyrir tíma iðnbyltingarinnar, en eftir að hafa ferðast víða um Ísland og skoðað ummerki eftir gríðarlegar hamfarir jarðsögunnar leyfi ég mér að efast um að það sem er að gerast núna sé eitthvað einstakt að stærðargráðu. Jöklarnir eru að nálgast það sem þeir voru minnstir á síðustu öld, og hvað með það ... eftir tíu ár gæti verið skollin á ísöld t.d. ef það yrði óvenjustórt eldgos einhversstaðar á jörðinni.
P.S. Ég hef mína eigin tilgátu um hvað veldur ólgunni á heimskautaísnum. Það er ekki fyrirbærið "hnattræn hlýnun af völdum koltvísýrings" og því síður af mannavöldum, í rauninni sýna mælingar (þ.e. ófalsaðar) að hitastigið í lofthjúpnum hefur ekkert verið að hækka mjög skarpt undanfarið. Hinsvegar mætti taka með í reikninginn þá virkni sem á sér stað undir yfirborði jarðar, og ekki síður sjávar. Getur verið að jörðin sé hreinlega að hitna innan frá, og að hlýnun sjávar með tilheyrandi ísbráð sé til komin vegna aukinna neðansjávareldgosa? Hlýnandi sjór getur svo haft mikil áhrif á veðurkerfi og raskað jafnvægi þeirra, gleymum ekki að veðrið samanstendur aðallega af tvennu: úrkomu sem er uppgufun frá sjónum og vindi sem orsakast af hitabreytingum á yfirborði jarðar sem er að meirihluta sjór. Auk þess leiðir vatn miklu betur hita en berglög þurrlendisins. Til þess að fá svör við þessum spurningum er gagnslaust að spyrja loftslagsvísindamenn þar sem þetta er einfaldlega ekki þeirra svið, heldur þurfum við að leita til jarðfræðinga. En ef þetta skyldi vera málið þá er líka spurningin hvað geti valdið því að jörðin hitni innan frá? Þar sem sama ferli er að eiga sér stað á sama tíma, ekki bara hér á jörðinni heldur er hnattræn hlýnun samtímis á öllum hinum plánetunum, þá grunar mig að svarið sé að finna utan okkar sólkerfis. Það vantar bara að láta stjörnufræðinga, eðlisfræðinga, jarðvísindamenn og veðurfræðinga tala saman til að fá botn í þetta. Og vinsamlegast ekki taka mig of alvarlega hérna, þetta er bara tilgáta sem mér finnst forvitnileg.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 02:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Góður díll eða slæmur brandari?
18.12.2009 | 21:02
Fyrr má nú vera hvað allt er orðið öfugsnúið í þessu vesalings þjóðfélagi. Nú þykjast menn geta lækkað IceSave reikninginn um "nokkra tugi" milljarða með því að greiða 185 milljarða til Seðlabanka Evrópu. Engum sem lokið hefur grunnskólaprófi ætti samt að dyljast hvor talan er stærri: "tugir" eða 185. Nema kannski þeir sem hafa að auki framhaldsmenntun í flugeldahagfræði? Samt sem áður er þetta kynnt sem "góður díll" fyrir Ísland. Þegar svona hagspeki er annars vegar þá spyr maður óhjákvæmilega í hvaða bréfaskóla þessir menn fengu prófskírteinin!?
Seðlabanki hertogadæmisins Luxembourg er auk þess sagður vera stærsti erlendi eigandi skuldabréfa í krónum, en "Yfirvöld hér mega ekki til þess hugsa að skuldabréfin ... fari á markað, með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á gengi krónunnar." Stöldrum nú aðeins við: skuldabréfin eru verðlögð í krónum sem þýðir að ef þau færu á almennan markað og kaupandi fyndist þá þyrfti hann fyrst að kaupa íslenskar krónur til að geta svo greitt fyrir bréfin, og þannig myndi eftirspurn eftir krónum aukast tímabundið sem við flestar kringumstæður veldur gengishækkun en ekki lækkun.
Svo er talað um að Seðlabanki Íslands muni ef til vill greiða fyrir þetta með skuldabréfi verðlögðu í Evrum. Já, Seðlabanki Íslands ætlar að kaupa krónur fyrir Evrur, sem er eins tilgangslaust og hugsast getur því hann gæti allt eins "prentað" sömu upphæð í krónum nánast ókeypis. Okkur vantar hinsvegar sárlega Evrur því þær megum við ekki prenta!
Annaðhvort er þetta lélegur brandari eða það er hreinlega verið að láta reyna á það hversu mikið er hægt að plata okkur. Mig grunar samt, og það skín allsstaðar í gegn, að eitthvað meira liggi þarna að baki en sagt er í fréttinni. Ætli þetta sé kannski lausnargjald fyrir útrásargóss í eigu fárra útvalinna?
BRANDARI #1: Hafiði heyrt um hagfræðinginn sem fór í matvöruverslun nýlega? Hann borgaði 185 krónur fyrir mjólkurlítrann gegn því að fá gefins innkaupapoka sem venjulega kosta "nokkra tugi" króna. Svo fór hann heim og reyndi að sannfæra konuna sína um að hann hefði þrátt fyrir allt gert góð kaup því hann staðgreiddi ekki vörurnar heldur tók myntkörfulán fyrir þeim!
BRANDARI #2: Vitiði afhverju Latibær er á leiðinni á hausinn? Það er af því að þeir réðu til sín flugeldahagfræðing sem taldi öllum trú um að skynsamleg leið til endurfjármögnnar væri að kaupa allt ónotað upplag fyrri ára af Latabæjarpeningum, á genginu milljón alvöru krónur fyrir hvert lató. Með því að tæma markaðinn af latópeningum verði eftirspurnin (næstum engin) hlutfallslega svo miklu meiri en framboðið (alls ekkert!) að verðmæti seðlanna muni rjúka upp úr öllu valdi,. Fyrirtækið verði því á grænni grein svo lengi sem það liggi á þessum sneplum eins og ormur á gulli, og geri upp reikningana í (p)lató í stað ISK. Verðmætasköpun komi málinu hinsvegar ekkert við enda sé þetta skotheld hagfræði!
BRANDARI #3:
- Nemandi: "Hvernig stigbreytist orðið vitleysa?"
- Kennarinn: "Vitleysa; tómt kjaftæði; hagfræði."
Svona er Ísland í dag, allt á hausnum og snýr þar af leiðandi öfugt!
Í næsta þætti: hvítt verður svart, og tap mun framvegis verða kallað hagnaður.
![]() |
Icesave-skuldbindingar gætu lækkað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
IceSave | Breytt 9.3.2010 kl. 17:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Framkvæmdastjóri SI stofnar "Já hreyfingu"
18.12.2009 | 17:37
Ég vil vekja athygli á pistli mínum frá í gær þar sem fjallað er um svokallaða "Já hreyfingu" sambandssinna, sem nýlega var stofnuð af engum öðrum en framkvæmdastjóra Samtaka Iðnaðarins. Merkilegur er sá útúrsnúningur sem felst í heitinu "Þjóð meðal þjóða" á samtökum sem stefna að því að gera landið að útnárahreppi í evrópsku stórríki.
Það eru 193 fullvalda þjóðríki á jörðinni, en aðeins 27 í Evrópusambandinu sem verða bráðum eitt. Ef við viljum sannarlega vera þjóð meðal þjóða er það eingöngu hægt með því að við ráðum sjálf samskiptum okkar við hin 166 ríkin, en ekki með því að afsala stjórn utanríkismála til útlendinga.
Áfram Ísland! - ESB sendi-herrann til baka heim til Finnlands!
![]() |
Sendiherra ESB á Íslandi kemur í byrjun árs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þjóð meðal þjóða? Rangnefni að endemum!
17.12.2009 | 21:18
Evrópumál | Breytt 18.12.2009 kl. 17:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Lítið skjól í Evrulandi
11.12.2009 | 14:28
Evrópumál | Breytt 23.2.2010 kl. 14:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Losunarheimildir: nýja flugeldahagfræðin ?
10.12.2009 | 01:35
Öryggis- og alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 02:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vefpóstur fyrir Indriða: postur.stjr.is
7.12.2009 | 13:07
Öryggis- og alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 13:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Tvær bombur á WikiLeaks
7.12.2009 | 02:48
Öryggis- og alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 02:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mun fleiri mættu en síðast, minnst þúsund manns
5.12.2009 | 17:23
Hvað með 77. gr. stjórnarskrárinnar?
2.12.2009 | 11:31
IceSave | Breytt 9.3.2010 kl. 17:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Max Keiser: Efnahagsstríð
28.11.2009 | 01:24
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 01:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjungur endurheimta á kostnað skattgreiðenda?
17.11.2009 | 18:18
Ljósagangur á vesturhimni
17.11.2009 | 00:49
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 00:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)