Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008
Enn dregur úr samkeppni...
10.11.2008 | 10:32
![]() |
Framtíðarsýn í greiðslustöðvun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggarar vísa Hannesi á bug
9.11.2008 | 22:38
Datt bara í hug að snúa fyrirsögn fréttarinnar á haus, fannst það meira viðeigandi í ljósi þeirra fyrirsjánlegu viðbragða sem þessi vægast sagt hjákátlega yfirlýsing Hannesar Smárasonar virðist vera að fá. Vezlings kjellinn... mátti hann ekki vera í kafbátviðskiptum eins og allir vinir hans? Er ekki ljótt að skilja útundan strákar, þetta var líka alveg "dúndrandi bissness" var það ekki???
"I didn't do it. No one saw me do it. No one can prove anything."
Spaugilegt | Breytt 10.11.2008 kl. 17:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mislýsingar? (=misvísandi upplýsingar)
9.11.2008 | 22:07
Upp á síðkastið eru misvísandi upplýsingar og sögusagnir orðnar svo algengar í íslenskum fjölmiðlum að ég legg til að innleitt verði eftirfarandi nýyrði, þó ekki væri nema bara til að spara okkur smá innslátt hér á blogginu:
Mislýsingar :
- Óstaðfestar eða véfengjanlegar upplýsingar sem ganga þvert á aðrar óstaðfestar eða véfengjanlegar upplýsingar, og þjóna oftar en ekki þeim tilgangi að villa fyrir sýn á hinar raunverulegu staðreyndir málsins.
- Fleirtala orðsins mislýsing sem gæti t.d. átt við beina útsendingu frá íþróttakappleik þar sem dómarinn er farinn í kaffi og á meðan hafa slagsmál brotist út meðal leikmanna og þjálfara beggja liða, en í stað þess að segja rétt frá heldur útvarpsþulurinn áfram með lýsingu á ímynduðum kappleik sem á sér enga stoð í veruleikanum, e.t.v. til þess eins að halda hlustendum rólegum hjá viðtækjunum. *
Öðrum sem vilja taka þátt í nýyrðasmíðinni er frjálst að bæta við sínum eigin tillögum. Lengi lifi íslenska tungumálið!

![]() |
Hannes vísar ásökunum á bug |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnarbylting?
8.11.2008 | 22:41
Það virðist stefna í að stjórninni verði steypt enda ekkert annað í stöðunni. Í dag voru kröftug mótmæli á Austurvelli og lá við fjöldaslagsmálum þegar lögreglan ætlaði að fjarlægja einn mótmælenda sem hafði flaggað Bónusfánanum á þaki Alþingishússins. Reiður múgurinn hefti þó för lögreglumanna og sýndi almenna mótspyrnu, hugsanlega hefur löggan bara ekki fattað brandarann og haldið að Jón Ásgeir ætlaði sér að yfirtaka rekstur Alþingis líka!
Ástandið róaðist þó eftir að viðstaddir höfðu bent lögreglunni á að verið væri að berjast fyrir málstað allra en ekki fárra og þeirra hlutverk væri að þjóna almenningi en ekki útvöldum, þörf áminning það! Þetta virðist hafa haft nokkur áhrif því að svo búnu tók lögreglan sér stöðu fremst í flokki mótmælenda og stóð heiðursvörð á meðan hópur mótmælenda grýtti þinghúsið með eggjum og skyri.
Á sjötta tímanum stóðu nokkrir mótmælendur enn á tröppum Alþingis með mótmælaspjöld þegar hreinsibíll mætti til að skúra matvælin af með háþrýstidælu. Nú leita margir hinsvegar logandi ljósi að enn stórtækari græjum til að smúla skítinn út úr fjármála- og stjórnkerfinu, með misjöfnum árangri. Nýjustu fregnir herma hinsvegar að efasemdir séu uppi meðal æðstu manna um að nógu margar haugsugur séu í landinu til að pumpa upp öllum óþverranum og koma honum til förgunar í öruggri fjarlægð. Óttast jafnvel sumir að fá skítasprengjuna í andlitið og hafa þess vegna fullkomnað paranoiuna með því að umkringja sig lífvörðum.
![]() |
Hiti í mönnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.11.2008 kl. 23:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
VR félagar takið eftir!
7.11.2008 | 23:36
Tekið úr lögum VR.
25. gr. Félagsfundir
Félagið heldur fundi svo oft sem þurfa þykir. Þó skal stjórninni skylt að boða til fundar, þegar eigi færri en 200 félagsmenn krefjast þess skriflega og skal fundurinn haldinn innan 7 daga frá því að stjórninni barst krafan í hendur. Fundur telst lögmætur, sé hann boðaður með auglýsingum í dagblöðum og/eða í útvarpi með minnst tveggja daga fyrirvara. Heimilt er að boða fund með skemmri fyrirvara vegna sérstakra ástæðna, svo sem samningagerðar eða annars samkvæmt mati stjórnarinnar. Afl atkvæða ræður úrslitum mála á fundum nema þar sem lög þessi ákveða annað. Gjörðabók skal haldin og í hana ritað ágrip af því sem fram fer á fundum félagsins.
Lögmætir félagsfundir hafa æðsta vald í öllum málefnum félagsins milli aðalfunda innan þeirra takmarka, sem lögin setja.
Þeir sem vilja mega skilja undirskriftir sínar eftir hér fyrir neðan, ég skal þá varðveita þær og koma þeim á framfæri við Kristófer Jónsson skipuleggjanda mótmælanna eftir því sem ástæða þykir.
P.S. fyrir þá sem vilja mótmæla með tölvupósti þá eru hér netföng stjórnarmanna í VR ásamt varamönnum (skv. heimasíðu félagsins):
- Gunnar Páll Pálsson gunnar@vr.is
- Stefanía Magnúsdóttir stefania@vr.is
- Jóhanna E Vilhelmsdóttir bettyogbolli@simnet.is
- Benedikt Vilhjálmsson bv@falkinn.is
- Eyrún Ingvaldsdóttir eyrun@olgerdin.is
- Gunnar Böðvarsson gunnarb@aknet.is
- Jón Magnússon jm@hekla.is
- Lykke Bjerre Larsen bauninn28@hotmail.com
- Margrét Sverrisdóttir maggasv@nyherji.is
- Rannveig Sigurðardóttir rannveigsig@internet.is
- Sigurður Sigfússon sigurdur@n1.is
- Steinar J Kristjánsson steinarj@husasmidjan.is
- Valur Magnús Valtýsson valurv@mmedia.is
- Þorlákur Jóhannsson thorl.johanns@simnet.is
- Jóhanna Sigurbjörg Rúnarsdóttir johanna@bl.is
- Jón Hrafn Guðjónsson jong@flugger.com
- Steinunn Guðmundsdóttir steinunn@takplan.is
Viggó H. Viggósson hefur sett ákveðið fordæmi með skeyti sem hann hefur sent stjórninni og birt á bloggi sínu. Ég tek mér það bessaleyfi að endurbirta það hér og kann ég Viggó bestu þakkir fyrir framtak hans:
To: vr@vr.is, stefania@vr.is, bettyogbolli@simnet.is, bv@falkinn.is, eyrun@olgerdin.is, gunnarb@aknet.is, jm@hekla.is, bauninn28@hotmail.com, maggasv@nyherji.is, rannveigsig@internet.is, sigurdur@n1.is, steinarj@husasmidjan.is, valurv@mmedia.is, thorl.johanns@simnet.is, johanna@bl.is, jong@flugger.com, steinunn@takplan.is
"Ég undirritaður mótmæli hér með harðlega að Gunnar Páll Pálsson sitji áfram sem formaður VR og skora ég hér með á stjórn VR að óska eftir því við hann að hann segi af sér, en víki honum ella.
Jafnframt fer ég þess á leit við stjórn VR að beita sér fyrir því að fulltrúar Lífeyrissjóðs VR sitji ekki í stjórnun félaga.
Með virðingu og ósk um réttlæti."
![]() |
Vilja stjórn VR burt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 8.11.2008 kl. 01:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Austurvöllur kl. 15:00 á morgun
7.11.2008 | 23:16
Minni á aðgerðirnar hérna heima. Á morgun, laugardag er dagskráin einföld:
13:00 Borgarafundur í Iðnó
15:00 Vér mótmælum öll á Austurvelli
Heykvíslar á loft. Ísland lengi lifi!
![]() |
Forsetanum mótmælt í Georgíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Segir tilkynningu RLS uppspuna
7.11.2008 | 20:42
Ég hef beinar heimildir (ónafngreindar) fyrir því að afneitun Ríkislögreglustjóra á notkun "valdbeitingarhunda" sé ekkert annað en yfirklór. Þeir eru auðvitað hvergi skráðir undir þessu heiti, en lögreglan hefur engu að síður yfir hundum að ráða sem þeira nota t.d. við almennt eftirlit. Þeim hefur samt sem áður verið beitt á umræddan hátt í vissum tilvikum, t.d. við fyrirfram ákveðnar handtökur tiltekinna einstaklinga.
![]() |
Segir fréttir DV af sérsveit uppspuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spilling innan IMF
7.11.2008 | 18:14
Þessi athyglisverða grein um spillingu innan IMF var birt sem athugasemd á bloggi Ómars Ragnarssonar. Mér fannst greinin nógu athyglisverð til að vilja geyma hana og tek mér því bessaleyfi til að endurbirta hana hér, vonandi ekki í óþökk höfundar:
![]() |
Lán tefst eitthvað áfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Öryggis- og alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 18:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Ritskoðun?
6.11.2008 | 20:48
![]() |
Bretar lána 800 milljónir punda vegna Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hann heitir Loftur...
6.11.2008 | 17:49
...og er flugumferðastjóri!
Er ég kannski sá eini sem finnst það dálítið skondið?
![]() |
Máli flugumferðarstjóra vísað heim |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Það er almennur misskilningur að IMF (Aljóða gjaldeyrissjóðurinn) sé góðgerðastofnun. Hinar svokölluðu "hjálparaðgerðir" IMF hafa á síðustu árum verið harðlega gagnrýndar um allan heim.
Joseph Stiglitz, nóbelsverðlaunahafi í hagfræði, starfaði sem framkvæmdastjóri IMF á árunum 1997-2000 en var svo rekinn úr starfi fyrir að tjá sig opinberlega um hinn "raunverulega árangur" IMF. Hann benti á þá staðreynd að flest ríki sem þiggja aðstoð IMF enda í mun verri stöðu en áður. Efnahagskerfin hrynja algjörlega, ríkisstjórnir splundrast og ríkisvaldið minnkar og oftar en ekki endar allt í hörðum átökum og glundroða. Fyrir það að benda á þessa alkunnu staðreynd var hann rekinn.
Það er staðreynd að ríki sem eru í efnahagslegum vandræðum þola sjaldan þau skilyrði sem IMF setur fyrir lánveitingum sínum. Hækkun skatta og harður niðurskurður í mennta- og heilbrigðiskerfum fer illa með fólk í viðkomandi löndum. Kröfur um opnun markaða eyðilegga alla innlenda framleiðslu og landbúnað. Strangar kröfur um einkavæðingu veita svo náðarhöggið því helstu nauðsynjar og þjónusta hækka upp úr öllu valdi.
Suður Ameríka er gott dæmi um þá hörmungarslóð sem IMF hefur skilið eftir sig. Mörg lönd þar hafa misst öll auðæfi sín í hendur erlendra einkaðila, aðallega bandarískra og breskra stórfyrirtækja sem kúga þegna landana með gríðarlegum hækkunum á t.d. gasi, olíu og jafnvel drykkjarvatni. Þar á meðal eru lönd eins og Argentína, Bólivía, Brazilía, Chile, Paraguay og El Salvador. Sömu sögu er að segja í Indónesíu og nokkrum Afríkuríkjum.
Eftir slíkar aðfarir er skiljanlegt að almenningur rísi upp með hörðum mótmælum og uppþotum gegn ríkisstjórnum landana, sem frá upphafi voru í vonlausri stöðu. Efnahagurinn hrynur aftur og landið þarf að afsala sér enn frekari réttindum og auðæfum til IMF.
Argentína er eitt ljótasta dæmið um þessa meðferð IMF. Þar varð á endanum efnahagslegt stórslys eftir aðkomu IMF og gjörsamlega allar auðlindir landsins voru seldar erlendum stórfyrirtækjum eins og British Petrolium og Enron. Jafnvel vatnsveitukerfin voru einkavædd og stór hluti höfuðborgarinnar Buenos Aires er án drykkjarvatns. Ekki nóg með að vatn sé nú dýrt, heldur er bara ekki hægt að skrúfa frá krananum.
Árið 2001 voru svo opinberuð mjög óþægileg skjöl fyrir IMF. Ónefndur aðilli lak viðkvæmum skjölum í hinn margverðlaunaða blaðamann og rithöfund Greg Palast, sem birti þau opinberlega í sjónvarpsviðtali og síðan á heimsíðu sinni www.gregpalast.com.
Þar kom fram að ofan á þær opinberu kröfur sem IMF hafði sett Argentínu og fleiri ríkjum settu þeir fram óopinberar og leynilegar kröfur sem alþjóða samfélagið fékk ekki að vita um. Að meðaltali voru þetta yfir hundrað leynikröfur á hvert ríki. Leiðtogum ríkjanna var stillt þannig upp við vegg að þeir urðu að láta undan og samþykkja allar kröfurnar. Þar á meðal voru kröfur um það hvaða erlendu risafyrirtæki fengju auðlindir þjóðanna svívirðilega langt undir raunvirði. Skjölin voru undirrituð af Jim Wolfensen, þáverandi framkvæmdarstjóra IMF. Í fyrstu neitaði bankinn tilvist skjalana en dró það til baka eftir að Greg Palast birti þær á síðunni sinni. Bankinn varð þá að viðurkenna tilvist skjalana en ákvað að tjá sig ekki frekar um málið opinberlega.
IMF er að því er virðist spillt stofnun að einhverju eða jafnvel öllu leyti.
Sú hugsun er í raun ekki svo langsótt þegar litið er til þeirrar staðreyndar að IMF er að 51% hlut í eigu United States Treasury.
Allir ofangreindir hlutir eru því miður staðreyndir.
Efasemdamönnum er velkomið að gera örlitla upplýsingaöflun á netinu, ekki þarf að leita lengra en www.wikipedia.com
En hefur Ísland eitthvað að óttast vegna væntanlegs láns frá IMF?
Ríkisstjórn Íslands hefur fullyrt það að kröfur IMF séu "ásættanlegar" og að íslenskt efnahagslíf sé sniðið að þörfum og kröfum IMF og þurfi ekkert að óttast. Það er von allra Íslendinga að svo sé en við skulum nú samt velta nokkrum hlutum fyrir okkur áður en við tökum þau orð góð og gild.
Ef litið er blákalt á stöðuna þá er Ísland komið í svo slæma stöðu að ekki virðist nein önnur útgönguleið en að leita á náðir IMF. En svo mikið er víst að þegar aðeins ein möguleg leið er sjáanleg úr mikilli krísu þá að sjálfsögðu virðist sú leið "ásættanleg" hver svo sem hún er.
Nú þegar IMF er kominn með hönd sína á íslensku reiðtygin, byrjar íslenski seðlabankinn að hækka stýrivexi upp í 18% sem mun án nokkurs efa veita mörgum fjölskyldum og fyrirtækjum náðarhöggið á þessum erfiðu tímum. Fjármálaspekingum um allan heim þykir þessi leikur Seðlabankans vægast sagt furðulegur þegar aðeins eru 10 dagar frá því stýrivextir voru lækkaðir niður í 12%. Seðlabankastjórnin virðist ekki vita í hvorn fótinn hún á að stíga.
Einnig er erfitt að líta fram hjá því að hækkun stýrivaxta hér á landi er algjörlega í andstæðu við þá verulegu lækkun stýrivaxta sem önnur lönd hafa ákveðið að nota gegn heimskreppunni.
En hvað er hægt að gera?
Er hægt að gera eitthvað meira en að vona það besta?
Auðvitað verðum við Íslendingar að trúa því og treysta að ráðamenn þjóðarinnar og Seðlabankinn séu að gera sitt besta á þessu erfiðu tímum. En við megum ekki gleyma því að þessir sömu aðillar sem nú fara ofan í saumana á íslenska efnahagshruninu og eru að setja saman björgunaraðgerðir fyrir þjóðina, eru þeir sömu og bera hvað stærsta ábyrgð á allri vitleysunni.
Nú verðum að standa upp og krefjast þess að þeir sem eigi hlut að máli axli ábyrgð. Krefjumst þess að gamla hugsunarhættinum verði skipt út fyrir nýjar hugsjónir, og fyrst og fremst verðum við að krefjast þess að allar upplýsingar um aðdraganda og eftirmála íslensku kreppunar verði dregnar fram í sviðsljósið.
Við eigum ekki að sætta okkur við það að þeir aðilar sem eru ábyrgir fyrir hruninu sitji nú við samningaborðið við spillta stofnun fyrir luktum dyrum og neiti að tjá sig um ákvæði samninga.
Afhverju taka samningaviðræður við IMF svo langan tíma og afhverju ríkir svo mikil leynd yfir þeim? Gæti það mögulega verið vegna þess að ráðþrota ríkisstjórn okkar eigi mjög erfitt með að kyngja þeim leynisamningum og valdbeitingu sem IMF beitir nú með miklum þunga?
Við verðum að gera ráðamönnum þjóðarinnar ljóst að okkur er ekki sama um þá álitshnekki sem þjóðin hefur orðið fyrir og að aldrei muni það viðgangast að auðæfi og stolt þjóðarinnar verði hrifsuð burt.
Íslendingar stöndum ekki aðgerðalausir né lítum niður á þá sem mótmæla. Tölum ekki gegn þeim sem hylla raunverulegt lýðræði.
Okkur Íslendingum ber skylda að standa saman og láta í okkur heyra.
Mætum næstu laugardaga niður á Austurvöll kl 15:00 og látum rödd fólksins óma til yfirvalda.
höfundur er óflokksbundinn og stoltur Íslendingur.
Arnar Fells Gunnarsson