Ljóð vikunnar

Sögutími: saga tímans

Sagan endurtekur sig.
Ferðast um spíral,
í smækkandi hringi.
Óðar hverja umferð,
á annari fætur.

Sagan endurtekur sig.
Bylgjuform tímans,
núllpunkt nálgast.
Vaxandi hraða með,
óreiða, örvinglan.

Sagan endurtekur sig.
Hringiðan sogast,
um stormsins auga.
Hvar kyrrðin ríkir,
er tímans endi?

          - Guðm. Ásg.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband