Mótmælum fyrirhuguðum stjórnarskrárbrotum!

Sú ákvörðun stjórnvalda að láta ríkissjóð og þar með skattgreiðendur ábyrgjast það sem út af stendur þegar eignir gamla Landsbankans hafa verið seldar upp í IceSave skuldir, er ekki bara óskiljanleg eins og Eiríkur Bergmann Einarsson stórnmálafræðingur bendir á, heldur brýtur hún beinlínis í bága við landslög og stjórnarskrá lýðveldisins. Í tilefni af þessum fordæmalausu landráðum vil ég draga fram eftirfarandi lagagreinar máli mínu til stuðnings og hef feitletrað þau atriði sem mestu máli skipta í þessu samhengi. Ég ætla ekki að bæta við frekari skýringum eða túlkun frá eigin brjósti heldur láta lögin tala sínu máli og treysti ég því að viðmælendur mínir séu sæmilega læsir og skilji íslensku.

Úr III. kafla laga nr. 98/1999 um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta:

10. gr. Fjárhæð til greiðslu.
Nú hrökkva eignir viðkomandi deildar sjóðsins ekki til þess að greiða heildarfjárhæð tryggðra innstæðna, verðbréfa og reiðufjár í hlutaðeigandi aðildarfyrirtækjum og skal þá greiðslu úr hvorri deild skipt þannig milli kröfuhafa að krafa hvers þeirra allt að 1,7 millj. kr. er bætt að fullu en allt sem umfram er þessa fjárhæð skal bætt hlutfallslega jafnt eftir því sem eignir hvorrar deildar hrökkva til. Fjárhæð þessi er bundin við gengi evru (EUR) miðað við kaupgengi hennar 5. janúar 1999. Sjóðurinn verður ekki síðar krafinn um frekari greiðslu þótt tjón kröfuhafa hafi ekki verið bætt að fullu.

Úr IV. kafla stjórnarskrár Lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944:

40. gr. Engan skatt má á leggja né breyta né af taka nema með lögum. Ekki má heldur taka lán, er skuldbindi ríkið, né selja eða með öðru móti láta af hendi neina af fasteignum landsins né afnotarétt þeirra nema samkvæmt lagaheimild.
41. gr. Ekkert gjald má greiða af hendi, nema heimild sé til þess í fjárlögum eða fjáraukalögum.

Enn fremur, úr VII. kafla stjórnarskrárinnar:

77. gr. Skattamálum skal skipað með lögum. Ekki má fela stjórnvöldum ákvörðun um hvort leggja skuli á skatt, breyta honum eða afnema hann.
Enginn skattur verður lagður á nema heimild hafi verið fyrir honum í lögum þegar þau atvik urðu sem ráða skattskyldu.

Úr X. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940, n.tt. um landráð:

91. gr. Hver, sem kunngerir, skýrir frá eða lætur á annan hátt uppi við óviðkomandi menn leynilega samninga, ráðagerðir eða ályktanir ríkisins um málefni, sem heill þess eða réttindi gagnvart öðrum ríkjum eru undir komin, eða hafa mikilvæga fjárhagsþýðingu eða viðskipta fyrir íslensku þjóðina gagnvart útlöndum, skal sæta fangelsi allt að 16 árum.
Sömu refsingu skal hver sá sæta, sem falsar, ónýtir eða kemur undan skjali eða öðrum munum, sem heill ríkisins eða réttindi gagnvart öðrum ríkjum eru undir komin.
Sömu refsingu skal enn fremur hver sá sæta, sem falið hefur verið á hendur af íslenska ríkinu að semja eða gera út um eitthvað við annað ríki, ef hann ber fyrir borð hag íslenska ríkisins í þeim erindrekstri.
Hafi verknaður sá, sem í 1. og 2. mgr. hér á undan getur, verið framinn af gáleysi, skal refsað með fangelsi allt að 3 árum, eða sektum, ef sérstakar málsbætur eru fyrir hendi.

Slíku ofbeldi og valdníðslu sem í þessu felst má þjóðin ekki kyngja þegjandi og hljóðalaust. Sjáumst vonandi öll með potta og pönnur við Alþingi þegar málið verður tekið fyrir á morgun kl. 15:00.

Ísland lengi lifi!


mbl.is Hugsanleg Icesave mótmæli á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólöglegur samningur?

IceSave málið snýr þannig að ríkisstjórn Íslands að þegar á reyndi og greiða þurfti út tryggingar tapaðra innstæðna evrópskra sparifjáreigenda vegna rekstrarstöðvunar Landsbankans, var tryggingasjóðurinn nánast tómur. Ég vek því athygli á eftirfarandi grein laganna um innstæðutryggingar sem á við í slíkum tilvikum:

10. gr. Fjárhæð til greiðslu.
Nú hrökkva eignir viðkomandi deildar sjóðsins ekki til þess að greiða heildarfjárhæð tryggðra innstæðna, verðbréfa og reiðufjár í hlutaðeigandi aðildarfyrirtækjum og skal þá greiðslu úr hvorri deild skipt þannig milli kröfuhafa að krafa hvers þeirra allt að 1,7 millj. kr. er bætt að fullu en allt sem umfram er þessa fjárhæð skal bætt hlutfallslega jafnt eftir því sem eignir hvorrar deildar hrökkva til. Fjárhæð þessi er bundin við gengi evru (EUR) miðað við kaupgengi hennar 5. janúar 1999. Sjóðurinn verður ekki síðar krafinn um frekari greiðslu þótt tjón kröfuhafa hafi ekki verið bætt að fullu.

 

Það lítur því út fyrir að ríkisábyrgð á fullnaðargreiðslum falli beinlínis út fyrir þær skyldur sem kveðið er á um í lögunum!

Til þess að standa undir ríkisábyrgðinni ef á hana reynir, sem það mun líklega gera samkvæmt mati um endurheimtur á eignum gamla Landsbankans, mun þurfa að fjármagna þær greiðslur ásamt vöxtum af skattekjum ríkissins. En þá verður að líta til þess að afturvirk skattheimta er í raun óheimil og slíkur IceSave skattur getur því aldrei orðið löglegur. Stoð fyrir þessu er að finna í stjórnarskrá Lýðveldisins Íslands:

40. gr. Engan skatt má á leggja né breyta né af taka nema með lögum. Ekki má heldur taka lán, er skuldbindi ríkið, né selja eða með öðru móti láta af hendi neina af fasteignum landsins né afnotarétt þeirra nema samkvæmt lagaheimild.
41. gr. Ekkert gjald má greiða af hendi, nema heimild sé til þess í fjárlögum eða fjáraukalögum.

77. gr. Skattamálum skal skipað með lögum. Ekki má fela stjórnvöldum ákvörðun um hvort leggja skuli á skatt, breyta honum eða afnema hann.
Enginn skattur verður lagður á nema heimild hafi verið fyrir honum í lögum þegar þau atvik urðu sem ráða skattskyldu.

Á mannamáli þýðir þetta að það er einfaldlega bannað að innheimta skatta til að greiða fyrir ábyrgð ríkisins vegna IceSave, þar sem slík heimild var ekki til staðar þegar Landsbankinn fór á hliðina.

Það hvernig haldið hefur verið á afgreiðslu þessa máls er slíkur ósómi og fruntaskapur að manni hreinlega ofbýður. Þetta er stjórnarskrárbrot og aðför að efnahagslegu fullveldi Íslands!


mbl.is Icesave-samningur gerður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rangtúlkun á efnahagslegum veruleika

"Samkvæmt frétt Reuters-fréttastofunnar þykir hinn aukni áhugi á málminum góða vísbending um að bjartara sé framundan í efnahagslífinu."

Ööööö... nei! Hækkun á gulli = lækkun á dollar (hann er að deyja)! Þetta er ekkert annað en fjármagnsflótti.


mbl.is Fjárfestar auka kaup á gulli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðarskútan?

Fannst þetta bara eitthvað svo táknrænt fyrir ástand mála í þjóðfélaginu... allt komið á hliðina!

Sóley Sigurjóns

P.S. stýrivextir lækkuðu í morgun um 1% og eru þá 12%.... HVAÐ ER ÞAÐ EIGINLEGA???


mbl.is „Skipið ruddist upp í hraunið"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kallið eftir sannleikanum um 9/11 að verða að öskri

Þetta viðtal við Richard Gage, talsmann samtakanna Architects and Engineers for 9/11 Truth, birtist nýlega á bandarísku sjónvarpsstöðinni KMPH Fox 26 í Fresno, Kaliforníuríki:


Þess má geta að allt fram til ársins 2000 var einn af stjórnarmönnum Securacom/Stratesec enginn annar en Marvin P. Bush (já, litli bróðir W.#43)! Annað fyrirtæki sem var viðriðið öryggismálin í WTC var svo Kroll sem var nýlega ráðið af skilanefnd Glitnis til þess að rannsaka grun um óeðlilegar millifærslur í aðdraganda bankahrunsins á Íslandi.


Loks bendi ég áhugasömum á stórbrotinn fyrirlestur Richards, 9/11: Blueprint for Truth


Megi sannleikurinn koma í ljós að lokum!


Einmitt það sem ég vildi vita...

Eygló Harðardóttir þingmaður Framsóknarflokks hefur lagt fram fyrirspurn um verðmat fasteignlána "nýju bankanna". Þetta er einmitt það sama og ég hef áhuga á að vita svo ég geti metið hvort það sé yfir höfuð verjandi að halda áfram að borga af...

Studio Jylland?

Legg til að það heiti Stúdíó Jótland! Nýopnað útibú Stúdío Sýrlands í Danmörku þ.e. Er það ekki bara alveg borðleggjandi?!

Liðkað fyrir fullveldisafsali?

Það hlýtur að teljast í hæsta máta vafasamt í ljósi þeirrar tillögu sem nú liggur fyrir Alþingi um hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu, að það sé á sama tíma að greiða milljónastyrki til Alþjóðamálastofnunar Háskólans. Ég ætla ekki að gera því...

Quagmire? (Family Guy)

Brasilíumaðurinn sem sagt er frá í tengdri frétt hlýtur að vera "real life" útgáfan af teiknimyndapersónunni Quagmire. Aðdáendur Family Guy þáttanna vita nákvæmlega hvað átt er við, en aðrir munu líklega ekki fatta húmorinn. Sorglegt samt að það skuli í...

Báru ábyrgð á öryggismálum WTC

Glitnir banki hefur nú ráðið bandaríska ráðgjafafyrirtækið Kroll Inc. til að rannsaka grun um óeðlilegar millifærslur í aðdraganda bankahrunsins. Meðal þess sem Kroll hefur áður haft umsjón með voru öryggismál í tvíburaturnunum og öðrum byggingum World...

Lóðið vegur eina mörk

Koparlóðið sem Margrét Hallmundsdóttir fornleifafræðingur fann við Þingvallakirkju í morgun er sagt vega 252 grömm eða u.þ.b. eina mörk . Það er gömul mælieining sem jafngildir hálfu norsku pundi sem er 498,1 gr, en hefð er fyrir því að þyngd nýbura sé...

...og verða það vonandi framvegis.

Í fréttinni stendur að höfuðstöðvar ESB í Berlaymont byggingunni í Brüssel verði lokaðar í dag vegna eldsvoða sem varð þar í gær. Blessunarlega varð ekkert manntjón af eldinum aðeins skemmdir á húsnæðinu, sem ætti auðvitað bara að loka til...

EFTA vann ESB í Eurovision!

Þessa helgina bar það helst til tíðinda að EFTA þjóðirnar Noregur og Ísland söltuðu gjörsamlega ESB-ríkin í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Fer vel á því og vonandi er þetta bara forsmekkurinn að farsælu samstarfi frændþjóðanna í...

Skrautleg saga Varðar

Vörður tryggingafélag á sér langa sögu sem hefur verið dálítið skrautleg það sem af er þessari öld. Henni er líklega best lýst eins og hún er birt á heimasíðu félagsins, en þarna tvinnast sagan á milli margra af stærstu viðskiptablokkum landsins á nokkuð...

Hvað með EES og Kína?

Í tengdri frétt The Times er bent á veika samningsstöðu Íslands gagnvart ESB og velt upp þeim möguleika að skoða aðrar leiðir í milliríkjaviðskiptum, t.d. NAFTA. Nú er ég ekki að mæla með því sérstaklega að við hengjum okkur aftur á Kanann en það er þó...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband