Bein útsending frá Aþenu
28.6.2011 | 12:40
Í gríska þinginu fara nú fram umræður um fyrirhuguð niðurskurðaráform vegna skilyrða neyðarlána frá IMF/ESB. Allsherjarverkfall hefur verið boðað og mótmælendur safnast saman í miðborginni, þar sem nú þegar hafa brotist út átök og táragasi verið beitt.
Önnur sjónarhorn: tenglar hér, hér og hér.
Og kynningarmyndband frá andófshreyfingunni:
![]() |
Táragasi beitt í Aþenu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt 29.6.2011 kl. 02:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Héraðsdómur Suðurlands tekur kvittanir ekki gildar
28.6.2011 | 12:19
Héradómur Suðurlands hefur komist að þeirri niðurstöðu að kvittanir sem gefnar hafa verið út fyrir greiðslum sem inntar hafa verið af hendi, séu ekki endanlegar. Dómurinn virðist telja seinni tíma lög sem breyta forsendum afturvirkt (í þessu tilviki lög nr. 151/2010) vera góð og gild og hafa forgang umfram ein elstu lög sem eru í gildi á Íslandi, jafnvel umfram sjálft eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar.
Yrði þessi niðurstaða staðfest af hæstarétti jafngilti það því að allar samningsbundnar fjárskuldbindingar í landinu væru í uppnámi. Það myndi pottþétt gera lukku meðal erlendra aðila sem vilja athafna sig hér, eða þannig.
En fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott. Fáist dómafordæmi fyrir lögmæti lagasetningar af þessu tagi, þá ættu eignarréttarsjónarmið ekki að standa í vegi fyrir almennri leiðréttingu stökkbreyttra lána með lagasetningu þar að lútandi. Þá væri ekki heldur neitt sem útilokar lagasetningu um endurúthlutun fiskveiðiheimilda, enda aðeins um samningsbundin réttindi að ræða sem samkvæmt þessari niðurstöðu eru ólögvarin.
Í rauninn myndi slík niðurstaða kollvarpa öllu sem hingað til hefur verið haldið fram með hliðsjón af eignarrétti.
![]() |
Samningum verði breytt afturvirkt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 12:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bein útsending frá Aþenu
28.6.2011 | 11:25
Það er farið að hitna talsvert í kolunum í Aþenu, en fyrirhuguð niðurskurðaráform stjórnvalda vegna neyðarlána ESB/IMF verða tekin til umfjöllunar í gríska þinginu í dag. Stéttarfélög hafa boðað til tveggja sólarhringa allsherjarverkfalls og mótmæli hófust við þinghúsið snemma í morgun. Þegar þetta er skrifað hljómar taktfastur tunnusláttur og búsáhaldaglymur á Stjórnarskrártorginu, en inn á milli kveða við sprengingar í flugeldum og heyra má slagorð hrópuð í gjallarhorn.
ATH: Bein útsending hér
þessi færsla kann að verða uppfærð eftir því sem á líður.
![]() |
Grikkland stöðvast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 11:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
ESB: Plan B fyrir Grikkland! ???
27.6.2011 | 23:33
Ekki er liðin vika síðan stjórnendur Evrópusambandsins fullyrtu að engin varaáætlun væri fyrir hendi ef svo færi að björgunaráætlun evrópska bankakerfisins vegna skuldavanda Grikklands myndi bregðast. Nú herma heimildir Reuters innan evrópska stjórnkerfisins hinsvegar að varaáætlun hafi reyndar verið í undirbúningi um nokkura vikna skeið. Augljóslega geta ekki bæði verið rétt samtímis, og því eru aðeins tveir möguleikar fyrir hendi.
1) Varaáætlun hefur raunverulega verið í smíðum, en í stað þess að segja sannleikann kjósa æðstu stjórnendur ESB þar á meðal forsetinn Jóse Manual Barroso, að setja fram lygar sem fela í sér óljósa hótun um skelfilegar afleiðingar ef ekki verði farið að vilja þeirra í einu og öllu. Þetta gæti verið til þess að...
1a) ...þrýsta á um samþykki grískra stjórnvalda, eða....
1b) ...skapa ímynd(aðan) trúverðugleika á björgunarpakkanum.
Semsagt er annaðhvort tæpur meirihlutavilji fyrir áformum um niðurskurð, eða þá að björgunarpakkinn er einfaldlega ótrúverðugur, nema hvorutveggja sé. Hinn möguleikinn:
2) Tilvist meintrar varaáætlunar er lygin ein, gerð til þess að skapa ímynd(aðan) trúverðugleika á vinnubrögðum yfirstjórnar ESB. Semsagt þá er raunverulega engin varaáætlun, yfirstjórnendur ESB hafa ekki hundsvit á því sem þeir eru að gera og hafa þar af leiðandi engan trúverðugleika.
Hvorugur möguleikinn er góður.
Engum sögum fer af undirbúningi íslenskra stjórnvalda vegna skuldakreppu evrusvæðisins, eða hugsanlegum varaáætlunum, heldur er utanríkisráðherra staddur í Brüssel til að hefja formlegar aðildarviðræður Íslands að þessu hægfara járnbrautarslysi. Það er meginstefnumál flokks hans, reyndar það eina í efnahagsmálum, og þar eru engar varaáætlanir gerðar. Í sértrúarsöfnuðum þurfa hinir innvígðu nefninlega bara að hlýða ritningunni í blindni og þá mun þeim berast frelsun sem af himnum ofan, eða svo segir allavega sá sem sakramentinu útdeilir.
![]() |
ESB með varaáætlun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 23:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Anonymous lýsa stríði á hendur kerfinu
27.6.2011 | 13:42
"THE PLAN" IS NOW LIVE. PHASE 1: INITIATED. WAR AGAINST THE SYSTEM.
http://www.whatis-theplan.org
Become a member and join us as we initiate a movement for real change.
"The Plan" 1 year. 3 phases. A world of change.
Share this message with everyone you can.
PHASE 1: Better yourself. Spread the message. Be the message.
*Educate yourself on the depths of the system, the functions put it place to inhibit true freedom as well as the mechanisms within the system that motivate the masses to subconsciously accept giving up those freedoms. The structures within the system that promote division within the people of the countries of this world and the injustices that are placed upon the people.
*Spread the message. Share this video and the website with everyone you can. Make your own videos, songs, art, graffiti etc... spreading the word that we are here, the movement is taking hold. Expect us.
*Learn ways that will allow you to break free from the system. Start small and implement them in your daily lives. This will be implemented as a focus of Phase 2 as well, escalating what you have learned.
*ANON hackers - begin supporting the movement. This is a calling to all of you for the aid of this movement. Low-priority targets are your engagement. Assist with the movement and spread the message of "The Plan".
The resistance is here.
Expect us.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 19:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Kjarnorkuver á bólakafi: engin hætta?
27.6.2011 | 11:23
Öryggis- og alþjóðamál | Breytt 28.6.2011 kl. 10:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Útför Evrunnar
26.6.2011 | 14:06
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 14:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Úps, 911 milljarða grísk skekkja
24.6.2011 | 14:52
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 15:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Skuldavandi Grikklands á mannamáli
24.6.2011 | 07:40
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 03:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Írland prentar boli í fjáröflunarskyni
23.6.2011 | 21:29
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 21:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mat íbúðarhúsnæðis hækkar um 9%
23.6.2011 | 18:05
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 18:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Það er spennandi að búa í Evrópu
23.6.2011 | 16:00
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 16:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hvernig undirbúa íslensk stjórnvöld sig?
22.6.2011 | 22:38
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 22:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
Evrópusambandið á rangri leið
22.6.2011 | 20:54
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 20:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
ESB: Ekkert Plan-B fyrir Grikkland
22.6.2011 | 20:32
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 20:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)