Maður klórar sér bara í hausnum
13.4.2011 | 15:00
Ungir jafnaðarmenn segjast í yfirlýsingu sinni treysta á að Brynjar Níelsson, Reimar Pétursson og Advice hópurinn leggi fram sína krafta til að vinna án launa fyrir íslensku þjóðina í IceSave málinu, (væntanlega við hugsanlega málsvörn) enda voru báðir þessir aðilar fullvissir um að slík ákvörðunartaka væri til hagsbóta fyrir Íslendinga og lagaleg staða Íslands byggði á styrkum stoðum. Það er von Ungra jafnaðarmanna að slíkar yfirlýsingar hafi ekki verið lagðar fram án ábyrgðar,".
Er þetta ekki fólkið sem barðist hvað harðast fyrir því að láta okkur öll borga risastóran reikning sem er ekki okkar skuld? Er þetta ekki stuðningsfólk þeirra misvitringa sem eyddu nokkur hundruð milljónum af almannafé í löglausa samningagerð til einskis?
Og nú vill þetta sama fólk að þeir sem eru hugsanlega vel til þess fallnir að vinna að því að málið leysist í samræmi við lög og reglur réttarríkisins, geri það í sjálfboðavinnu.
Getur verið að ungkratarnir tími allt í einu ekki að borga? Eða vilja þau kannski spilla fyrir málsvörninni? Svo leyfa þau sér að vera með óljósar meiningar um ábyrgðarleysi...
Er ennþá 1. apríl eða hvað?
![]() |
Vinni án launa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 15:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Told you so
13.4.2011 | 12:45
Skuldatryggingaálag (CDS) íslenska ríkisins er nú hið lægsta frá hruni, eða 216 punktar, og hefur lækkað um 10% frá því fyrir helgi (lægra er betra). Fátt hefur gerst í millitíðinni nema að íslenska þjóðin hafnaði ríkisábyrgð á samningi tryggingarsjóðs innstæðueigenda (TIF) vegna IceSave.
Reyndar hótuðu hollenskir ráðamenn líka að við fengjum ekki að ganga í ESB.
Til samanburðar er Spánn, eitt af stærri hagkerfum Evrusvæðisins, nú með CDS 214 og fer hækkandi. CDS fyrir Evruríkin Grikkland (1030), Portúgal (562), og Írland (531) fer einnig hækkandi um þessar mundir.
Enn eru samt fjölmargir í áhrifastöðum í íslensku efnahagslífi sem þráast við þá villutrú að ríkisábyrgð á IceSave, aðild að Evrópusambandinu og upptaka Evru, feli í sér einhverjar efnahagslegar lausnir. Þessir aðilar láta sig engu skipta þó meirihluti þjóðarinnar sé ekki bara á móti þessari stefnu, heldur hafi nú tvisvar hindrað framgang hennar og í bæði skiptin reynst hafa rétt fyrir sér.
Getur verið að skýringarnar á því hversu illa gengur að koma Íslandi aftur á réttan kjöl, sé að finna í þriðju málsgreininni hér á undan?
![]() |
Álagið hið lægsta frá hruni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 12:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25:0
12.4.2011 | 23:24
Tillaga til þingsályktunar um vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
Sjálfstæðisflokkur
Árni Johnsen
Ásbjörn Óttarsson
Birgir Ármannsson
Bjarni Benediktsson
Einar K. Guðfinnsson
Guðlaugur Þór Þórðarson
Jón Gunnarsson
Kristján Þór Júlíusson
Ólöf Nordal
Pétur H. Blöndal
Ragnheiður E. Árnadóttir
Ragnheiður Ríkharðsdóttir
Sigurður Kári Kristjánsson (varam.)
Tryggvi Þór Herbertsson
Unnur Brá Konráðsdóttir
Þorgerður K. Gunnarsdóttir
Fjöldi: 16
Framsóknarflokkur
Birkir Jón Jónsson
Eygló Harðardóttir
Guðmundur Steingrímsson
Gunnar Bragi Sveinsson
Höskuldur Þórhallsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sigurður Ingi Jóhannsson
Siv Friðleifsdóttir
Vigdís Hauksdóttir
Fjöldi: 9
Samtals: 25
Til að ná meirihluta fullskipaðs þings þarf 32 atkvæði.
Miðað við núverandi skiptingu þingsæta veltur það á tveimur stjórnarþingmönnum.
![]() |
Styðja vantrausttillöguna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16:0
12.4.2011 | 23:08
Tillaga til þingsályktunar um vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
Til að ná meirihluta fullskipaðs þings þarf 32 atkvæði.
Sjálfstæðisflokkur
Árni Johnsen
Ásbjörn Óttarsson
Birgir Ármannsson
Bjarni Benediktsson
Einar K. Guðfinnsson
Guðlaugur Þór Þórðarson
Jón Gunnarsson
Kristján Þór Júlíusson
Ólöf Nordal
Pétur H. Blöndal
Ragnheiður E. Árnadóttir
Ragnheiður Ríkharðsdóttir
Sigurður Kári Kristjánsson (varam.)
Tryggvi Þór Herbertsson
Unnur Brá Konráðsdóttir
Þorgerður K. Gunnarsdóttir
Samtals: 16
![]() |
Tillaga um vantraust lögð fram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ground Hog Day
12.4.2011 | 22:46
Núna virðist Morgunblaðinu hafa tekist að flækja sig og hugsanlega líka óvart EUobserver fréttaveituna í talsvert flókna ritdeilu við hollenskan gervihagfræðing sem virðist ætla að draga dilk á eftir sér.
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins mælti í dag fyrir vantrauststillögu á ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri-grænna. Hann hafði reyndar fyrir síðustu helgi fullyrt að þjóðaratkvæðagreiðslan um IceSave mætti ekki snúast um líf ríkisstjórnarinnar.
Samt stendur í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum:
"Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar um liðna helgi er aðeins enn ein birtingarmynd þess vanda sem ríkisstjórnin á við að etja."
En það merkilegasta við tilkynninguna í ljósi þeirra málefna sem nú eru framundan:
"Einn stjórnmálaflokkur, Samfylkingin, hefur sett endurreisn landsins í gíslingu í einstrengingslegum tilraunum sínum til að þvinga þjóðina í Evrópusambandið studd af vinstri grænum sem virðast láta sér vel líka þrátt fyrir stefnu flokksins í aðra átt. Augljóst er, að aðild að ESB er í andstöðu við meginþorra þjóðarinnar og aðildarferlið einungis til þess fallið að auka enn frekar á sundrungu og erfiðleika hennar."
Þar höfum við það.
![]() |
Neitar ummælum um forsetann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ekkert að marka vísitölureikninga
12.4.2011 | 11:30
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 11:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Guð blessi Írland
12.4.2011 | 10:56
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 11:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stórvarasamir Íslendingar :)
12.4.2011 | 10:34
IceSave | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.400 "líkar" við þessa frétt
12.4.2011 | 08:00
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 03:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sjáumst þá í réttarsal
12.4.2011 | 02:02
IceSave | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Fjölmiðlar gegn fjölmiðlalögum
11.4.2011 | 23:59
Fjölmiðlar | Breytt 12.4.2011 kl. 00:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fjármálamarkaðir hafa sagt sitt álit
11.4.2011 | 21:14
IceSave | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Matsfyrirtækin eru í ruslflokki
11.4.2011 | 17:22
IceSave | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Til hamingju Ísland
10.4.2011 | 08:02
IceSave | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Til hamingju með daginn + kosningaspá
9.4.2011 | 22:06
IceSave | Breytt s.d. kl. 22:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)