Ísland ber ekki ábyrgð á breskum ákvörðunum

Íslensk stjórnvöld yrðu aldrei fyrir dómi gerð ábyrg fyrir ákvörðunum breska innstæðutrygginasjóðsins (FSCS). Það er samt einmitt það sem Bretar eru að reyna að ná fram með IceSave samningnum, og þess vegna inniheldur hann víðtæk ákvæði sem firra þá ábyrgð og koma í veg fyrir að Ísland geti látið reyna á réttarstöðu sína. Maður myndi ekki skrifa undir lánasamning ef maður þyrfti þar með að afsala sér öllum réttindum til að láta ógilda hann ef í ljós kæmi að hann væri ólöglegur, er það nokkuð?
mbl.is Breski tryggingasjóðurinn leystur undan ábyrgð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Baldursson

Þetta er að kjarnast niður í að verða lang heitasta mál sem Alþingi hefur nokkurn tíma haft til umfjöllunar. ESB hangir líka á þessu máli. Það þarf því að sýna dugnað í því að hafa samband við þingmenn, helst með himsóknum niður á þingið. Það þarf að tryggja sem flest atkvæði gegn Icesave. Best er að fella það alveg.

Haraldur Baldursson, 27.7.2009 kl. 12:18

2 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Stefán Már Stefánsson lagaprófessonr mun vera sá lögspekingur sem þekkir reglur og lög Evrópusambandssins/EES hvað best. Hann ásamt öðrum góðum lögmanni, Lárusi Blöndal hrl., hefur skrifað einar 5 greinar þar sem þeir rekja það hverjar skuldbindingar eru í lögum og reglum um bankastarfsemi sem bankarnir störfuðu eftir. Þeir hafa leitt skír rök fyrir því að engin skuldbinding er á íslenska skattgreiðendur umfram það sem er til í innistæðutryggingasjóðnum, jafnvel þó að bankarninr hafi vanrækt að greiða sinn hlut í hann. Sömuleiðis sú ástæða að við greiddum úr sjóðum skattgreiðenda til að bæta íslenskum innistæðueigendum upp í topp gerir okkur ekki heldur skuldbundna við þá bresku eða hollensku.

Þetta segir okkur að við getum róleg farið að ráðum Davíðs Oddssonar frá upphafi, að við, skattgreiðendur, eigum ekki að borga skuldir óreiðumanna í útlöndum sem þeir stofnuðu til í gegn um einkafyrirtæki sín.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 27.7.2009 kl. 23:08

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Það er ótrúleg múgsefjun í gangi í sambandi við Icesave.

Þetta er ekki skuld almennings, punktur.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 27.7.2009 kl. 23:57

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það eru komin fram nokkrar greinar og ályktanir, þar sem ábyrgð þjóðarinnar á þessu Icesave-dæmi er dregin í efa, en dettur engum í hug að skoða þau mál og svo er það viðurkennt að Íslendingar voru beittir miklum þvingunum og þannig samninga er ekki mikið mál að ógilda en það atriði sem ég sakna einna mest í umræðunni er það að þegar bankarnir voru EINKA(vina)VÆDDIR á sínum tíma, voru AÐALRÖKIN þau AÐ ÞJÓÐIN OG ÞAR MEÐ RÍKIÐ BÆRU EKKI ÁBYRGÐ Á GJÖRÐUM ÞEIRRA.  Var bara verið að BLEKKJA þjóðina þarna á sínum tíma?  Svo er annað sem ekki hefur verið í umræðunni; innan Landsbankans voru tveir bankastjórar á alveg svimandi háum launum það var réttlætt með því að þeir BÆRU SVO GRÍÐARLEGA MIKLA ÁBYRGÐ og þar af leiðandi yrðu þeir að hafa ÞOKKALEG laun það væri ENGINN tilbúinn til að setja sig í svo miklar ábyrgðir á einhverjum „verkamannalaunum".  En hvernig er það eiginlega með þessa ÁBYRGÐ þeirra, ég hef ekki séð neitt í þá áttina að þeir sæti neinni hel.... ÁBYRGÐ?  Hvernig stendur eiginlega á því að þessir menn eru ekki handteknir og ákærðir fyrir stórkostlega vanrækslu í starfi og það að blekkja þjóðina og fyrir fjárplógsstarfssemi erlendis?  Ekki nóg með að þessir menn eigi að fara í fangelsi, heldur einnig öll bankastjórn Landsbankans og allir þeir sem þátt áttu í því að koma Icesave á"koppinn".  Það á að hirða allar eignir þessa fólks og gera allt þetta fólk gjaldþrota.  Það er þetta fólk sem ber ábyrgð á Icesave og það á að borga ekki þjóðin.  Hvaða blaður er þetta eiginlega um að samþykkja þetta rugl með fyrirvara?  Gera menn/konur sér ekki grein fyrir því að Icesave er samningur milli TVEGGJA aðila (reyndar þriggja en látum það liggja milli hluta) og samningum VERÐUR ekki breytt einhliða með einhverjum "draumafyrirvörum".

Jóhann Elíasson, 28.7.2009 kl. 07:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband