Hriktir í stoðum evruhagkerfisins

Evrópuþingmaðurinn Nigel Farage, sem er framarlega í flokki lýðræðissinna heldur hér ræðu þar sem hann talar yfir hausamótunum á van Rompuy forseta og Barroso framkvæmdastjóra. Burtséð frá eindreginni afstöðu hans (eurosceptic) þá setur hann hér fram á mannamáli nokkuð greinargóða samantekt á ástandinu.


mbl.is Þúsundir mótmæla á Írlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Heyr, heyr

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 28.11.2010 kl. 00:26

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Spurning dagsins hlýtur að vera, hversvegna vilja Jóhanna og Össur endilega fara inn í þetta samstarf?  Um evruna og ESB?  Var stjórnlagaþingið aðeins til þess að létta fullveldiskröfunni úr stjórnarskránni?  Og hefur þeim tekist það, með kosningaráróðri eða með öðrum leiðum? 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 28.11.2010 kl. 00:31

3 identicon

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 28.11.2010 kl. 01:29

4 Smámynd: Vendetta

Putin segir bara það sem Þjóðverjar vilja heyra eins og allir stjórnmálamenn sem eru í opinberri heimsókn einhvers staðar koma með fagurgala og yfirlýsingar. Þetta með að taka upp evruna án þess að ganga í ESB er ekki hægt (þótt stjórnin í Montenegro gerði það án stuðnings frá ECB og sem þar af leiðandi er ekki raunhæf lausn, þar eð þeir verða að kaupa evrur með öðrum gjaldmiðli).

Rússar geta í bezta (eða versta) falli bundið rúbluna við evruna, amk. tímabundið. Eða sérð þú fyrir þér, Stefán, Rússland með 142 milljónir íbúa og 17 milljón ferkílómetra í tveim heimsálfum sem meðlim í ESB? Þá yrði enn minni ástæða fyrir íslenzkri aðild.

Hins vegar ætla Rússar sér að gerast meðlimir að World Trade Organization fljótlega og það er ekkert leyndarmál að þeir hafa alltaf haft áhuga á tvíhliða viðskiptasamningum við ESB. En það þýðir ekki að þeir geti tekið upp evruna bara sisona. Enda er Angela ekki hrifin af hugmyndum Putins um evrasískt evrusvæði skv. Yahoo News.

En þú mátt gjarnan þýða þessar greinar sem þú vitnar í yfir á ensku eða annað aðgengilegt tungumál. Ég á dálítið erfitt með þýzku, sérstaklega blanda ég oft saman orðunum Dummkopf, Schweinhund og Sauerkraut. Svo ég tali nú ekki um orð eins og Gazkammer og Endlösung, sem láta svo tamt í munni Þjóðverja.

Vendetta, 28.11.2010 kl. 04:44

5 identicon

Vendetta:  Það er árið 2010.  En alltaf þarf að koma nasistum að.

Rússar vilja heldur ekki taka evruna einhliða upp.   Þeir vilja taka þátt í evrusamstarfinu.

Heldur þú virkilega að Pútín, einn áhrifamest maður í heimi, segir það sem menn vilja heyra?

Hefur hann gert það hingað til?

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 28.11.2010 kl. 06:49

6 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Ræða mannsinns er snilld

Ólafur Ingi Hrólfsson, 28.11.2010 kl. 09:30

7 identicon

Pútín þessi valdagírugi og gamli Kommúnisti og fyrrverandi forstjóri KGB á Sovétttímanum, sér náttúrulega að ESB apparatið er svona miðstýrt kerfisapparat þar sem hinir stóru ráða öllu og því fengi hann  mikil völd áfram og jafnvel endalaust, jafnvel allt til æviloka.

Hann þyrfti ekkert að vera að velta fyrir sér einhverjum kosningum þegar hann væri orðinn einn æðsti Commízar í ESB elítunni og hefði hlunnindi eins og aðalsmenn höfðu í den !

ESB = Back to the USSR

Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 28.11.2010 kl. 11:27

8 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Gunnlaugur - rétt hjá þér - svo heldur fólk sem vill okkur inn í klúbbinn með bretum og fleiri "stuðningsþjóðum" okkar að í þeirri ánauð felist ekkert framsal á sjálfsákvörðunarrétti þjóðarinnar.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 29.11.2010 kl. 07:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband