Ljóð vikunnar
15.2.2010 | 10:18
Sögutími: saga tímans
Sagan endurtekur sig.Ferðast um spíral,
í smækkandi hringi.
Óðar hverja umferð,
á annari fætur.
Sagan endurtekur sig.
Bylgjuform tímans,
núllpunkt nálgast.
Vaxandi hraða með,
óreiða, örvinglan.
Sagan endurtekur sig.
Hringiðan sogast,
um stormsins auga.
Hvar kyrrðin ríkir,
er tímans endi?
- Guðm. Ásg.
Flokkur: Menning og listir | Breytt 16.2.2010 kl. 11:06 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.