Lastu smáa letrið?

Ég les alltaf smáa letrið á öllum samningum og slíku áður en ég skrifa undir, og kanna sérstaklega vel allt sem getur leitt til aukakostnaðar, skilmála sem kveða á um ábyrgð "seljanda", binditíma samnings o.s.frv. Ég er reyndar líka þessi "pirrandi viðskiptavinur" sem hankar afgreiðslufólk í stórmörkuðum alltaf á því ef verð vöru á kassa stemmir ekki við hillumerkingar, en nóg um það. ;) Um þessar mundir er mikið rætt um þessa peningasjóði bankanna sem sumir virðast hafa tapast að miklu leyti, og af því tilefni ætla ég að segja hér dálitla dæmisögu.

Þegar kom að því á sínum tíma að taka húsnæðislán þá stóð valið milli tvennskonar greiðslufyrirkomulags, en munurinn í kostnaði að lánstíma loknum var á við kaupverð íbúðarinnar! Ég valdi að sjálfsögðu ódýrari kostinn þrátt fyrir að það hefði í för með sér hærri greiðslur í upphafi. Þegar þjónustustjórinn í bankanum hafði útbúið lánasamninginn og boðaði mig til undirritunar þá kom hinsvegar í ljós að búið var að breyta greiðslufyrirkomulaginu frá því sem ég tilgreindi á umsókninni. Ég gerði að sjálfsögðu athugasemd við þetta, enda hefði ég tekið skýrt fram við þjónustustjórann hverskonar lán ég vildi sækja um. Beðist var velvirðingar, gerður nýr (og réttur) lánasamningur og hann undirritaður án frekari eftirmála. Hefði ég verið svo vitlaus að lesa ekki vandlega þennan samning um stærstu fjárfestingu ævi minnar, áður en ég undirritaði hann, þá hefði ég þegar upp er staðið (á 40 ára tímabili) verið búinn að þurfa að greiða a.m.k. 10-20 milljónir aukalega í vexti. Ekki nóg með það heldur hefðu afborganirnar fyrstu 3 árin verið að langmestu leyti vextir og sáralítil eignamyndun sem verðbólgan undanfarið hefði étið upp jafn óðum og vel það. Eftir á að hyggja, hefði ég skrifað undir þetta plagg athugasemdalaust, þá vær ég í raun aðeins búinn að vera að leigja íbúðina af bankanum síðan ég keypti hana og upphaflega veðsetningin væri kominn upp í 100% eða jafnvel yfir það. En það er líka auðvelt að þykjast vera vitur eftir á...

Einfaldlega vegna þess að ég hafði fyrir því að lesa smáa letrið áður en ég skrifaði undir þá hefur veðsetningarhlutfallið lækkað um heil 5% í stað þess að hækka,  og á meðan hafa afborganirnar sáralítið hækkað eða í raun lækkað að raunvirði sé tekið tillit til verðlagsþróunar. Á sama tíma hefur verðmæti eignarinnar aukist nokkuð eða um 15- 25% frá kaupverði, þannig að sá hluti sem er umfram veðsetningu er nú orðinn miklu stærri í krónum talið en ég keypti hann á. Það hvarflaði sem betur fer aldrei að mér að taka gengistryggt lán fyrir svo stórum hluta æviteknanna, enda er áhættan af þeim meiri og ekki mjög skynsamlegt að setja þau egg öll í sömu (mynt)körfuna. Eftir á að hyggja þá hefðu líka verið mistök að treysta Davíð Oddssyni þannig óbeint fyrir efnahagslegri framtíð fjölskyldu minnar, sérstaklega með gjaldmiðli sem er ekki einu sinni víst að verði til út allan lánstímann! En eins og áður sagði þá er auðvelt að þykjast vera vitur eftir á... kannski hefði krónan bara haldið áfram að hækka endalaust, en hefði verið raunhæft að búast við því?

Ætli það sé ekki samt algengara en fólk vill viðurkenna að annaðhvort fyrir vankunnáttu eða vegna "sölugræðgi" bankastarfsmanna hafi það látið platast til að skrifa undir lánasamninga sem voru þegar upp er staðið hreinlega óábyrgir? Ég leyfi mér að fullyrða að svo sé, því ég veit um fullt af fólki sem hugsar ekki svo langt að það sé að velta því fyrir sér hvað verður um það eftir 40 ár. Umræddir einstaklingar hafa sumir eflaust ekki verið að hugsa málið til enda, heldur bara kvittað, búið og bless, og svo eru þau farin heim í nýju flottu íbúðirnar sínar. Þeir sem hafa tapað peningum í þessum sk. "peningasjóðum" ættu e.t.v. að dusta rykið af þeim samningum sem það skrifaði undir og lesa smáa letrið áður en það fer að væla yfir töpuðum "peningum". Til að byrja með verður fólk að átta sig á að um leið og það er búið að kaupa hlutabréf fyrir peninga, þá á það ekki lengur peninga heldur hlutabréf sem geta fallið í verði hvenær sem er. Ég tók t.d. meðvitaða ákvörðun á sínum tíma um að láta leggja viðbótarlífeyrissparnað minn í sjóð sem að hluta til samanstóð af pappírsverðmætum (hlutabréfum og verðbréfum), nú er sá sjóður lokaður (vonandi bara tímabundið) en ekki er ég vælandi yfir því. Það á einfaldlega bara eftir að koma í ljós hversu mikið hefur tapast þar og ég ætlaði hvort sem er aldrei að taka viðbótarsparnaðinn með mér í gröfina, þegar að því kemur verður "eiginfjárstaðan" ekki það sem mun vera mér efst í huga...

Tökum annað dæmi, ef ég myndi t.d. kaupa hús fyrir pening væri það mjög svipað, þá ætti ég ekki lengur peninginn heldur húsið og verðmæti þess getur tekið breytingum. Sveiflur í húsnæðisverði eru yfirleitt ekki eins öfgakenndar og á hlutabréfamörkuðum, því er áhættan minni en þó er hún tvímælalaust fyrir hendi. Í návígi við íslensk náttúruöfl er það t.d. fullkomlega raunverulegur möguleiki að eignin skerðist vegna tjóns sem er ekki bætt af tryggingum. Staðreyndin er einfaldlega sú að öllum fjárfestingum fylgir áhætta, og allar eignir geta minnkað að verðmæti af ástæðum sem maður ræður ekki yfir sjálfur. Jafnvel beinharðir peningar geta tapað verðmæti sínu skyndilega. Það gerist þó ekki oft nema e.t.v. þegar þær stofnanir sem eiga að bera ábyrgð á efnahagslegum stöðugleika klúðra sínu helsta verkefni, eins og sumir fá núna að reyna á eigin skinni t.d. Íslendingar erlendis. Krónan er í rauninni ekkert annað en hlutabréf í hagkerfinu Íslandi og ef það er raunin að Seðlabankinn sé farinn á hausinn (allir stærstu viðskiptavinir hans komnir í þrot?) þá er að sjálfsögðu ekkert skrýtið þó gengi krónunnar hafi lækkað nokkuð hratt við það!

Góðar stundir.

 


mbl.is „Það er búið að þurrausa sjóðinn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auknar valdheimildir...

...og stórauknar fjárveitingar til löggæslu verður það næsta sem hann nefnir, og nú hefur hann aldrei þessu vant alveg frábæra átyllu fyrir þann málstað, sérstaklega ef kreppan versnar og smáglæpir aukast eitthvað við það. Einhvern veginn grunar mig að við eigum eftir að sjá meira af BíBí á næstu misserum, en á sama tíma er fæ ég velgju af að hugsa til þess að þessi dómsmálaráðherranefna muni e.t.v. bera ábyrgð á rannsókn bankamálanna. Hann getur t.d. ekki talist annað en vanhæfur núna sökum tengsla hans við seðlabankastjóra, ekki nóg með að þeir séu góðkunningjar í pólitík til áratuga, heldur er Björn svo rótgróinn úr ætt Sjálfstæðismanna að hann hefur sennilega fengið flokksskírteinið afhent með fæðingarvottorðinu! Ef það verður gerð rannsókn á bönkum verður auðvitað að byrja hana á Kalkofnsveginum í "banka bankanna", en það er aðeins steinsnar þangað frá Skuggasundinu þar sem Dómsmálaráðuneytið er til húsa. Fái Björn að ráða er hinsvegar því miður hætta á að rannsóknin muni beinast eitthvað annað en í grennd við Arnarhólinn.

Auk þess vek ég athygli á því að Davíð og Björn eru einu núlifandi Íslendingarnir sem vitað er til að hafi setið leynifundi hinna alþjóðlegu Bilderberg-samtaka, þar sem sumir halda því fram að gangur heimsmálanna sé fyrirfram ákveðinn og skipulagður. Það er e.t.v. engin tilviljun að Joseph Retinger, einn af upphafsmönnum þessa leynifélags varð síðar einn af aðalhvatamönnum þeirrar sameiningarvinnu sem leiddi til stofnunar Evrópusambandsins! Mér þætti forvitnilegt að vita hinsvegar, hvort Davíð og Björn hafi nokkuð hitt Gordon Brown einhverntíma yfir kaffibolla á svona fundi? Skv. þáttökulista voru þeir nefninlega allir saman komnir á Bilderberg-fundi árið 1991. ;)


mbl.is Ný sjálfstæðisbarátta óhjákvæmileg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sköpun útflutningsverðmæta

Þessir menn eru greinilega ekki bara óforbetranlegir, heldur eru þeir líka hreinlega óborganlegir. Það hlýtur að teljast dæmigert fyrir íslenskt mikilmennskubrjálæði að þessir guttar skuli raunverulega, að því er virðist á örfáum mánuðum, sett upp eitt vandaðasta "methlab" sem sögur fara af svo vitnað sé í sérfræðinga Europol. Ósjálfrátt grunar mann vegna fyrri tengsla Jónasar Inga við litháenska fíkniefnasmyglara að þarna gæti verið erlendur maðkur í mysunni, ekki síst í ljósi ummæla Karls Steinars yfirfíknó um að afkastgeta verksmiðjunnar hafi verið slík að þetta kunni að hafa verið til útflutnings. Sköpun útflutningsverðmæta er auðvitað af hinu góða almennt séð ekki síst núna í gjaldeyriskreppunni, en hinsvegar held ég að megi fullyrða að í þessu tilviki hafi verið kominn einum of mikill "hraði" í útrásina!

SmileHappyLoLGrinWink

Sem betur fer virðist flest benda til þess að eiturframleiðslan hafi ekki staðið yfir mjög lengi eða jafnvel ekki verið hafin að fullu þegar lögreglan lét til skarar skríða. Þau vímuefni sem var sagt að hefðu fundist voru aðallega kannabisefni og ummerki eftir nokkrar sakleysislegar plöntur. Fyrirtækið var jú með innflutning á garðyrkju- og efnafræðivörum skráðan sem aukastarfsemi, frekar viðeigandi eða hvað? Svei mér þá ef Ísland í dag er ekki farið að minna á skáldsögu eftir Kafka... ;)


mbl.is Höfuðpaurar á reynslulausn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gos að koma?

Getur verið að þetta sé undanfari eldsumbrota? Ég sé fyrir mér æsilegar fyrirsagnir breskra blaða:

"Icelandic volcano erupts in reponse to Brown's abuse of anti-terror laws: Nyju Skaftareldar expected to cause widespread famine and disease throughout Europe!"

Kaldhæðni örlaganna virðist vera mikið uppi á teningnum þessa dagana...


mbl.is Jarðskjálfti í Vatnajökli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki selja lyfjafyrirtækið!

Það er mikilvægt öryggismál fyrir landið á þessum síðustu og verstu tímum að hér séu framleidd lyf og helst að við getum verið sjálfum okku nóg í þeim efnum. Þess vegna væri það glapræði ef eini lyfjaframleiðandi landsins yrði seldur erlendum aðilum fyrir slikk. Þarf ekki frekar að setja neyðarlög á það?!
mbl.is Segir Actavis hugsanlega til sölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kyrrsetning og eignaupptaka

Vegna nýlegrar aðfarar breskra stjórnvalda ættum við einfaldlega að kyrrsetja flugvélarnar þeirra þegar þær lenda á Keflavíkurflugvelli, þar sem vill svo til að við Íslendingar eigum nú gamla herstöð. Sendum svo hermennina heim á Saga Class en hirðum...

Byrja í Seðlabankanum!

Ef það á að rannsaka íslenska banka þá á að rannsaka þá alla, ekki síst Seðlabankann sem er "banki bankanna". Fyrst einkabankarnir þrír eru nú komnir undir stjórn og rannsóknarvald FME, þá er aðeins Seðlabankinn eftir og ekki seinna vænna fyrir þingið að...

Mótmælafundur á laugardag

...til að sýna viljann í verki, krefjumst þess að íslensk stjórnvöld stokki upp Seðlabankann, ekki síður en aðra banka í landinu. Eða eins og Geir og félagar eru duglegir að benda okkur á, þá erum við öll í þessu saman, ekki satt? Boðað hefur verið til...

Kærum þjóðernisofsóknir Breta!

Í fréttinni og grein nafna míns Frímannssonar kemur fram það sama og ég er búinn að vera að reyna að benda á: Glæpsamlegar aðgerðir Bretanna beindust sértækt gegn fyrirtækjum sem áttu það eitt sameiginlegt að vera kennd við sama þjóðernið, þar með...

Ísland tekið á rekstrarleigu

Alltaf líst mér nú jafn illa á svona hugmyndir um að leyfa erlendum stórfyrirtækjum að kaupa sér beinan aðgang að orkuauðlindum landsins, en skýringin er einföld: Ég er sjálfur með bíl á resktrarleigu, en umgengst hann engu að síður sem mína eign....

Alþjóðleg matsfyrirtæki o.fl.

Í erlendum fjárfestingarbönkum þar sem sýslað er með billjarða per mínútu, hafa menn stundum engan tíma til að lesa hverja einustu skýrslu eða grein sem skrifuð er um efnahagsmál, hvað þá um litla 300.000 manna "fyrirtækjasamsteypu" í N-Atlantshafi. Því...

Um samkeppnishæfni islenskra fjármálamarkaða

Af gefnu tilefni leyfi ég mér að birta hérna úrdrátt úr skýrslu World Economic Forum um alþjóðlega samkeppnishæfni ( e. Global Competitiveness Report ) 2008-2009, nánar tiltekið Kafla VIII sem fjallar um "vöndun fjármálamarkaða" ( e. Financial Market...

Hvenær kemur svo gos?

Það væri dæmigert fyrir kaldhæðni örlaganna ef við fengjum nú Nýja Skaftárelda ofan í allt saman. Spúandi eldi og eimyrju yfir Evrópu alla og N-Ameríku, þá gætu nú Rússarnir líka bara lagt þessum eldflaugum sínum, myndu ekki þurfa á þeim að halda gegn...

Meiri upplýsingar

Hér má lesa sér til um þessar eldflaugar Rússanna. Þeir njóta þess greinilega vel um þessar mundir að sýna mátt sinn og meginn. Vonandi veit þetta ekki á illt...

Blásið til sóknar!

Og takið eftir að það er ekki ríkisstjórnin sem er að blása til sóknar, heldur er fólk hætt að nenna að bíða eftir að þeir átti sig á því að þeir eru fastir í vonlausri varnarbaráttu. Sagði ekki afreksmaður í handbolta og þjóðhetja okkar einhverntíma að...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband