Það er ekki tekið út með sældinni...
13.3.2009 | 14:28
...að vera kona, frekar en fyrri daginn. Fréttin segir af sænskri konu sem er hreinlega óvinnufær í 24 vikur á ári beinlínis vegna fylgikvilla þess að vera kvenmaður! Vonandi hefur hún það bærilegt hinar 28 vikurnar af árinu, og ef þetta er raunverulegt ástand þá skil ég hana vel að sækjast eftir bótum.
En er þá ekki einfaldlega orðið jafnréttismál að karlmenn fái líka "kynjatengdar" bætur, t.d. vegna bru#&fyllisgremju, sem getur til lengri tíma orðið að þrálátu vandamáli ef ekkert er að gert!
Fyrirgefið ég bara varð... það er föstudagur! Meira að segja sá 13.
![]() |
Bætur vegna fyrirtíðaspennu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evran ekki tekin út með sældinni?
12.3.2009 | 12:05
Viðskiptahallinn hefur ekki mælst jafn mikill í Finnlandi í átján ár. Það virðist ekki hjálpa þó þeir séu í ESB og hafi tekið upp Evruna. Athyglisvert... en ósköp eðlilegt þar sem þar sem vandamálið stafar af minnkandi eftirspurn eftir finnskum útflutningsvörum, sem eru að stærstum hluta rafeindabúnaður, timbur og pappír. Í slíkum vanda er aðild að ríkjasambandi alls engin töfralausn, og þar sem Finnar hafa engin yfirráð yfir gjaldmiðlinum sem þeir nota er fátt sem þeir geta gert til að bregðast við þessu, nema kannski að byrja að veiða sér til matar sjálfir í skógunum sem þekja stóran hluta landsins.
Þar sem sjávarútvegurinn okkar á við svipaðan vanda að stríða, þá ættum við kannski að bjóða þeim upp á vöruskipti: fisk fyrir pappír og farsíma? Í nútímanum eru þetta nauðsynlegar vörur, og mikilvægt að viðskipti með þau stöðvist ekki þó heimsbúskapurinn dragist saman. Lykilatriðið í þessu er samt að fullveldisafsal er greinilega engin töfralausn.
![]() |
Mesti viðskiptahalli Finna í 18 ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Til hamingju Ísland!
11.3.2009 | 14:44
Kominn er fram skýr valkostur sem vill innleiða á ný lýðræðisleg vinnubrögð á Alþingi, og hafnar alfarið frekara afsali valdheimilda útfyrir landssteinana.
Setjum x við L fyrir lýðræðislegar lausnir!
![]() |
Efstu menn L-lista í Reykjavík-norður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Skiptar skoðanir um ESB í Sjálfstæðisflokknum
11.3.2009 | 13:45
Bjarni Ben. II.: vill þjóðaratkvæðagreiðslu (en hefur þó efasemdir um aðild)
Pétur Blöndal: segir nei (og rökstyður það).
Þorgerður Katrín: vill þjóðaratkvæðagreiðslu (síðast þegar ég vissi).
Meðal annara Sjálfstæðismanna eru afar skiptar skoðanir, og þrátt fyrir sterkar efasemdir virðast þeir margir hneigjast að því að segja: kannski. En þannig virðast þeir ætla að fiska slatta af atkvæðum jafnvel þó aðild að sambandinu myndi brjóta gegn sannfæringu þeirra, sem og þeim grunngildum sem flokkurinn var upphaflega stofnaður um.
Með alla þessa hálfvelgju er því leitun að skýrum valkosti gegn ESB-aðild fyrir komandi kosningar. Ég vil því benda á að eitt af aðal stefnumálum L-Listans er að standa vörð um lýðræðið og fullveldi Íslands, og af þeim sökum er lagst eindregið gegn frekara valdaafsali til útlendra stofnana.
Setjum x við L fyrir lýðræðislegar lausnir!
![]() |
Vill sátt flokka um næstu skref í ESB málinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Svefn-g-englar
10.3.2009 | 09:56
Bara yfirvinna og læti hjá þingmönnum.
En svona í alvöru talað, eru menn færir um að taka góðar ákvarðanir, svona svefndrukknir? Það kæmi ekki á óvart þó sumir verði geispandi í þingsalnum í dag.
![]() |
Þingfundur til að verða eitt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Gott mál
10.3.2009 | 09:30
Mikið var að beljan bar
9.3.2009 | 15:31
Peningaframleiðsla með "undralánum"?
9.3.2009 | 14:30
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 14:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Afhverju ekki gjaldþrot?
9.3.2009 | 13:16
Íslenska ríkið eignast Magasín við Kóngsins Nýjatorg í Kaupinhafn!
9.3.2009 | 12:20
2,1 milljarða tap Lífeyrissjóðs Verslunarmanna!
9.3.2009 | 12:11
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 12:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fjármagnsflótti frá Bretlandi 2008
9.3.2009 | 03:24
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 03:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
GWB er vel með á nótunum
8.3.2009 | 01:00
Ekki á Íslandi!
2.3.2009 | 12:53
Kemur úr athyglisverðum félagsskap
27.2.2009 | 15:12
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)