Bráðum 49 lönd
30.3.2022 | 21:48
Í tilvitnaðri frétt segir:
"48 lönd, þar með talin Danmörk og Finnland, hafa gerst aðilar að viðbótarbókun Sameinuðu þjóðanna sem segir að börn eigi rétt á að kvarta til Barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna."
Á næsta ári fjölgar þeim um a.m.k. eitt þegar Ísland bætist (vonandi) við:
Þingsályktun um barnvænt Ísland framkvæmd barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
6.2. Fullgilding þriðju valfrjálsu bókunarinnar við barnasáttmálann.
6.2.1. Markmið:
Börn geti leitað til barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna með mál sín.
6.2.2. Aðgerð:
Íslensk stjórnvöld fullgildi þriðju valfrjálsu bókunina og tryggi aðgengi barna að kvörtunarferli barnaréttarnefndarinnar.
6.2.3. Ábyrgð:
Dómsmálaráðuneyti.
6.2.4. Framkvæmd:
Dómsmálaráðuneyti.
6.2.5. Tímasetning:
Fullgildingu verði lokið fyrir árslok 2023.
Tillaga um kvörtunarrétt barna kolfelld | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Þingmál | Breytt 31.3.2022 kl. 01:42 | Facebook
Athugasemdir
Sameinuðu þjóðirnar hafa ekki þetta valdsvið.
Guðjón E. Hreinberg, 9.4.2022 kl. 15:02
Einmitt þess vegna þarf Ísland að fullgilda valfrjálsu bókunina, til að veita barnaréttarnefndinni heimild til að taka við kvörtunum barna á Íslandi.
Guðmundur Ásgeirsson, 9.4.2022 kl. 15:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.