Skondin fyrirsögn
11.1.2019 | 15:16
"Kona þarfnast endurforritunar."
"Ástæða innköllunar er forritunargalli í loftpúðaheila. Viðgerð felst í því að endurforrita loftpúðaheilann."
Hér um að ræða bíltegund sem heitir "Kona" og það þýðir eflaust eitthvað allt annað en íslenska orðið "kona". Vonandi hefur enginn séð fyrirsögnina og án þess að lesa fréttina dregið þá ályktun að um sé að ræða konu sem þarfnist endurforritunar á loftpúðaheila. Á hinn bóginn hlýtur þó að mega brosa að þessu án þess að neinn móðgist. :)
Kona þarfnast endurforritunar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Spaugilegt | Aukaflokkur: Fjölmiðlar | Facebook
Athugasemdir
Það er víst eins gott að feministafélagið komist ekki í þessa frétt.
Þorsteinn Siglaugsson, 11.1.2019 kl. 20:33
Einmitt Þorsteinn.
Við hin brosum vonandi bara að þessu. :)
Guðmundur Ásgeirsson, 11.1.2019 kl. 20:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.