Ekki á Íslandi!
2.3.2009 | 12:53
Fréttin fjallar um sjómennsku, sem er tölfræðilega hættulegasta starf í heimi. En við það má hinsvegar bæta að í fyrra varð ekki eitt einasta banaslys á sjó í landhelgi Íslands! Talið er að það megi að mestu leyti þakka stóreflingu slysavarna, kennslu og þjálfunar sjómanna undanfarin ár. Óskandi væri að samskonar árangur næðist á vegum landsins...
Hættulegasta starf í heimi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Öryggis- og alþjóðamál | Facebook
Athugasemdir
Sæll, þetta á nú auðvitað ekkert við hérna en ég fann ekki tölvupóstfangið þitt. Við höfum báðir verið að kommenta á annað blogg og mér sýnist við vera frekar sammála.
Langaði bara að kynna þér fyrir skólanum sem ég er í þessa dagana. Hann er kallaður KaosPilots. Þar er einmitt verið að þjálfa upp ungt fólk til að geta staðið á eigin fótum og sett upp sín eigin fyrirtæki og eða geta staðið á eigin fótum og skapað betri heim saman. Þetta er viðskiptaskóli sem leggur áherslur á félagsleganýsköpun og skapandi verkefnastjórnun.
Hér er allavega linkurinn á heimsíðuna okkar.
Við erum einmitt að leita að fólki sem myndi vilja fljúga með okkur næstu 3árin.
Unnsteinn Jóhannsson (IP-tala skráð) 4.3.2009 kl. 16:55
Takk fyrir þetta Unnsteinn, ég mun pottþétt kynna mér málið.
Guðmundur Ásgeirsson, 8.3.2009 kl. 01:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.