Ke$ha - Tik Tok (The Simpsons)

Hérna er ansi sniðugt tilbrigði við upphafsatriði The Simpsons, úr nýjasta þættinum sem var frumsýndur vestanhafs um síðustu helgi. Með þessu hljómar lagið Tik Tok með söngkonunni Ke$ha sem hefur verið vinsælt í útvarpi og á skemmtistöðum að undanförnu. Handritið að atriðinu sjálfu byggir á texta lagsins, sem er eins langt frá því að vera djúphugsaður kveðskapur og hugsast getur, enda fjallar hann bara um djamm og partí. Eins og svo oft áður tekst hinsvegar höfundum þáttanna að troða gríðarlega mikilli snilld inn í þessa rúmlega einu mínútu sem atriðið stendur yfir.

Ke$ha / Simpsons - Tik Tok

Svo fylgja hérna til gamans nokkur fleiri tilbrigði þetta fræga upphafsatriði:

The Real Simpsons

 

The Singhsons

 

The Estonians

 

Og í lokin tær snilld: Hómer reynir að kjósa Obama sem forseta

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband