2,1 milljarða tap Lífeyrissjóðs Verslunarmanna!
9.3.2009 | 12:11
Með yfirtöku ríkisins á Straumi er ljóst að hlutabréf í bankanum eru svo gott sem verðlaus og því hafa hluthafar tapað sínum fjárfestingum að mestu leyti. Þar af voru 7,28% í eigu lífeyrissjóða en Lífeyrissjóður Verslunarmanna er stærstur meðal þeirra með 2,22% eignarhlut.
Þessa sorgarsögu má rekja í tölum á vef LV, Kauphallarinnar og Straums:
- Hlutafjáreign LV í Straumi: 2,22% eða 229.840.370 hlutir
- 1.9.2008 lokaverð 9,15: verðmæti = 2.103.039.386 ISK
- 9.3.2009 skráð verð 0,01: verðmæti = 2.298.404 ISK
- Mismunur = 2.100.740.982 eða um 2,1 milljarðar frá upphafi bankahruns.
Hvað næst... einhverjir sparisjóðir kannski???
Straumur lækkar um 99,42% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 12:34 | Facebook
Athugasemdir
AMX.is fjallaði víst líka um þetta í morgun...
Guðmundur Ásgeirsson, 9.3.2009 kl. 13:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.