Bravó Agúst!
9.10.2008 | 09:50
- Úrdr. úr X. kafla almennra hegningarlaga -
91. gr. Hver, sem kunngerir, skýrir frá eða lætur á annan hátt uppi við óviðkomandi menn leynilega samninga, ráðagerðir eða ályktanir ríkisins um málefni, sem heill þess eða réttindi gagnvart öðrum ríkjum eru undir komin, eða hafa mikilvæga fjárhagsþýðingu eða viðskipta fyrir íslensku þjóðina gagnvart útlöndum, skal sæta fangelsi allt að 16 árum.
Sömu refsingu skal hver sá sæta, sem falsar, ónýtir eða kemur undan skjali eða öðrum munum, sem heill ríkisins eða réttindi gagnvart öðrum ríkjum eru undir komin.
Sömu refsingu skal enn fremur hver sá sæta, sem falið hefur verið á hendur af íslenska ríkinu að semja eða gera út um eitthvað við annað ríki, ef hann ber fyrir borð hag íslenska ríkisins í þeim erindrekstri.
Hafi verknaður sá, sem í 1. og 2. mgr. hér á undan getur, verið framinn af gáleysi, skal refsað með
1) fangelsi allt að 3 árum, eða sektum, ef sérstakar málsbætur eru fyrir hendi.
Við skulum vona fyrir hönd allra hlutaðeigandi að þeir muni geta borið við gáleysi þegar þar að kemur.
P.S. Vek enn og aftur athygli á undirskriftasöfnuninni til áskorunar um afsögn stjórnarformanns Seðlabankans. Svo ættu allir sem vettlingi geta valdið að setja slíkan hlekk á sínar eigin síður, helst með titlinum "David Oddsson" svo þetta fái nú hátt PageRank hjá leitarvélum. Lengi lifi byltingin!Ágúst Ólafur: Vill að seðlabankastjórar víki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:53 | Facebook
Athugasemdir
Athyglisvert.
Hafði ekki veitt þessu athygli en þetta er alveg mögulegt.
Jack Daniel's, 9.10.2008 kl. 09:53
stjórnin okkar þarf að víkja, verst að það bíða í startholunum samskonar fólk úr öllum flokkum til að halda áfram með prógrammið.
sjáið hvað þeir eru að dunda núna, í boði Jóns Bjarnasonar,
Á þingi eru þeir sveittir við að halda áfram með góbalíseringuna, þó hún hafi beðið skipsbrot, okkur til mikils tjóns,
þetta er alveg ga ga
http://jonbjarnason.blog.is/blog/jonbjarnason/
Gullvagninn (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 10:23
Sósíaldemókratar að yfirtaka heiminn með aðstoð gömlu kommanna úr austri?
Guðmundur Ásgeirsson, 9.10.2008 kl. 12:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.