Eini borgarfulltrúinn...
1.6.2008 | 11:47
...sem er að gera nokkuð af viti um þessar mundir, að mínu mati a.m.k. Haltu þínu striki Gísli, þetta er prýðilegt, en láttu þá líka taka svona skörungslega til þín í stóru málunum sem skipta mestu máli og þá tekst þér kannski að sanna að þú eigir erindi í pólitík. Og já, ef þú leyfir ljóshærðu fasistanorninni að hirða borgarstjórastólinn sem hún á akkúrat ekki neitt einasta erindi í, þá erum við hjónin búin að ákveða að flytja okkur á brott úr borginni og sem lengst í burtu! Þessi misskilningur að hún njóti einhvers stuðnings meðal borgarbúa er í besta falli þjóðsaga eða lélegur brandari.
Ósabraut ekki fyrir bíla? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Hver er ´ljóshærða fastistanornin'? Kannski er fávíslega spurt og sýnir máski hvað ég fylgist lítt með þjóðmálunum, en ég veit ekki við hvaða konu er átt.
Swami Karunananda, 1.6.2008 kl. 21:08
Úps! Prentvillupúkinn læddi inn auka-téi í orðinu ´fasistanornin´. Afsakið!
Swami Karunananda, 1.6.2008 kl. 21:10
Nú Hannabirna auðvitað, sástu ekki þegar hún horfði út í sal til mótmælenda á borgarstjórnarfundinum sem hún stýrði vegna síðustu meirihlutaskipta? Þar var augljóst af augnaráðinu hjá henni hvaða hug hún ber til "sauðsvarts almúgans" fjandans elítulufsan.
Guðmundur Ásgeirsson, 2.6.2008 kl. 16:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.