Almennur fyrningarfrestur kröfuréttinda er fjögur ár

Lesandi sendi Smartlandi spurningu um fyrningartíma skattaskuldar. Einhverra hluta vegna er þeirri spurningu ekki beinlínis svarað heldur fjallað um fyrningartíma skattalagabrota. Fyrning refsinga fyrir afbrot er alls ekki það sama og fyrning skulda eða kröfuréttinda.

Hér er því aðeins nákvæmara svar við spurningunni:

Samkvæmt 3. gr. laga um fyrningu kröfuréttinda nr. 150/2007 er almennur fyrningarfrestur kröfuréttinda fjögur ár. Frá þeirri meginreglu eru svo nokkrar undantekningar um lengri fyrningartíma en engin þeirra á beinlínis við um skattaskuldir.

Í þessu sambandi er þó einnig mikilvægt að hafa í huga eins og er réttilega bent á í svarinu frá lögmanninum að skatturinn getur rofið fyrningu með ýmsum hætti og þá hefst nýr fyrningartími sem er jafn langur hinum upphaflega, nema ef krafa er dæmd eða dómssátt gerð um hana en þá lengist fyrningartíminn í tíu ár.

Sem dæmi um aðgerðir til að rjúfa fyrningu má nefna beiðni til sýslumanns um fjárnám eða nauðungarsölu, krafa um gjaldþrotaskipti á búi skuldarans, lýsing kröfu í þrotabú eða söluverð eignar á nauðungarsölu, eða höfðun dómsmáls til innheimtu kröfunnar. Einnig getur skuldarinn sjálfur rofið fyrningu með því að viðurkenna kröfuna, til dæmis með loforði eða samkomulagi um greiðslu eða með því að greiða eitthvað af kröfunni.

Enn fremur er rétt að benda á að þegar skatturinn eða hið opinbera gerir kröfu um að haldið sé eftir af launum eða öðrum greiðslum upp í skuld rýfur það ekki fyrningu ef skuldarinn er ekki sjálfur hinn sami og sá sem greiðir inn á kröfuna.


mbl.is Fyrnast skattaskuldir?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Hver er summan af sex og núlli?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband