Velkominn sannleikur um bókun 35
8.6.2025 | 01:49
"Tilgangur bókunar 35 er að búa svo um hnútana að þjóðþing geti ekki svipt einstaklinga og fyrirtæki þeim réttindum sem þeim eru tryggð í EES-samningnum með setningu annarra laga."
Hér kemur mögulega í fyrsta skipti fram í umfjöllun Morgunblaðsins sá velkomni sannleikur um bókun 35 við EES samninginn, að tilgangur hennar er einfaldlega að festa betur í sessi þau réttindi sem einstaklingum og fyrirtækjum eiga að vera tryggð með EES samningnum.
Flestir hljóta að vera fylgjandi því að það sé betra að skjóta styrkari stoðum undir réttindi einstaklinga og fyrirtækja heldur en að gera það ekki. Þetta eru því í raun meðmæli með því að frumvarpið sem liggur fyrir Alþingi um lögfestingu þeirrar reglu sem kemur fram í ummræddri bókun 35 við EES samninginn verði samþykkt.
![]() |
Vilji til að afgreiða bókun 35 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Evrópumál | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:00 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning