Eitthvað um verðtrygginguna?
2.7.2013 | 12:33
Rannsóknarskýrsla um starfsemi Íbúðalánasjóðs kemur út í dag.
Það verður forvitnilegt að sjá hvað verður í skýrslunni, og jafnframt hvað ekki.
Þar á meðal hvort í henni sé að finna eitthvað um afleiðingar þess að byggja rekstrarmódel svo stórs lánveitanda alfarið á verðtryggðum útlánum, hver áhrif verðtryggingarinnar hafa verið á eiginfjárgrunn Íbúðalánasjóðs eftir að verðbólgan hækkaði lánin langt umfram undirliggjandi veðtryggingar, og hvort þar megi finna skýringar á eiginfjárvanda sjóðsins vegna þess hvernig eigið fé reiknast samkvæmt hinum svokölluðu Basel reglum.
Ef það verður ekkert um þetta í skýrslunni, er það eitthvað sem þyrfti að skoða sérstaklega, og upplýsa með sjálfstæðri rannsókn.
Íbúðalánasjóðsskýrslan birt í dag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Verðtrygging, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 12:34 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.