Nýr kafli: falsaðar sænskar kjötbollur
2.3.2013 | 17:30
Staðfest hefur verið að kjötbollur sem seldar eru í verslun og á veitingastað IKEA í Garðabæ eru alls ekki ekta sænskar kjötbollur heldur eftirlíkingar framleiddar hjá Norðlenska á Húsavík. Það skal þó tekið fram að ekkert liggur fyrir annað en að þetta séu prýðilegar kjötbollur sem uppfylla alla gæðastaðla. Þetta tilvik passar hinsvegar svo vel á listann að það væri synd að undanskilja hið sænska kjötbolluhneyksli.
Skáldsagan um Ísland - bofs.blog.is
Efnisyfirlit:
Iðnaðarsalt í matvælaframleiðslu
Ólögleg lán og endurútreikningar
Landbúnaðaráburður með kadmíum
Iðnaðarsílikon í brjóstaígræðslum
Landeyjahöfn og Grímseyjarferjan
Skólplosun á vatnsverndarsvæðum
Fjármálaeftirlitið og seðlabankinn
Símaskrárforsíðan og guli límmiðinn
Mannauðs- og fjárhagskerfið Orri
Blæðandi gallað repjuolíumalbik
Allir sjússamælar skakkir
Nýr kafli : Kjötbollur IKEA Norðlenskar
Ikea hættir að selja fleiri rétti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Spaugilegt | Aukaflokkar: Fjölmiðlar, Stjórnmál og samfélag, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 17:32 | Facebook
Athugasemdir
Maður á nú kannski ekki að vera að grínast þegar svona alvarleg mál eru á ferðinni en var að frétta það nyjasta i hrossakjötsmálinu.Þeir voru að finna leifar af rugguhesti í svefnsófa frá Ikea hérna í Noregi.Svo þeir í Ikea eru nú ekki alsaklausir.
Jósef Smári Ásmundsson, 3.3.2013 kl. 18:00
Þetta er selt sem sænskar bollur, fær ekki IKEA ekki mikla sekt fyrir ódæðið?
Eða kanski að einhver neytandi fari fram á skaðabætur ;>)
Kveðja frá Houston
Jóhann Kristinsson, 3.3.2013 kl. 18:00
Ég er líka farinn að hallast að því að sjálft heiti fyrirtækisins Gæðakokkar sé rakið dæmi um villandi markaðshætti og legg til lagt verði bann við notkun þess af hálfu núverandi rekstraraðila.
Guðmundur Ásgeirsson, 4.3.2013 kl. 02:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.