Ameríski Draumurinn

Skemmtileg teiknimynd frá the Provacateur Network: The American Dream


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vendetta

The plot thickens. Listinn yfir þá sem eru eða hafa verið grunaðir um að standa á bak við morðið á JFK og notazt við tvær leyniskyttur + Lee Harvey, sem átti að vera blóraböggull, er orðinn anzi langur:

  1. Mafíósinn Marcello, sem síðan fékk Jack Ruby til að þagga niður í Oswald. Ég man ekki ástæðuna, en þetta er nú opinber útgáfa yfirvalda, þar eð enginn trúir því lengur, að kommúnistinn Oswald hafi verið einn um morðið.
  2. CIA og Kúbverjar í útlegð, sem voru ósáttir við að Kennedy hætti í miðju kafi við innrásina á Kúbu, sem þar af leiðandi mistókst.
  3. FBI, þar eð J. Edgar Hoover hataði Kennedy-ættina eins og hún lagði sig.
  4. Joint Chiefs of Staff, Johnson og hergagnaframleiðendur, sem voru óhressir með það, að JFK vildi ekki auka hernaðinn í Viet Nam.
  5. Federal Reserve, sem vildu ekki að lagafrumvarp JFK um kúppla þá frá bandarískri peningaútgáfu og -innhemtu, skv. myndbandinu.

Þessar fimm kenningar eru ekki allar jafn trúverðugar, en er kenning 5 líklegust að þínu mati?

Vendetta, 25.1.2011 kl. 17:53

2 Smámynd: Vendetta

Leiðrétting:

...

5. Federal Reserve, sem vildu ekki að lagafrumvarp JFK um kúppla þá frá bandarískri peningaútgáfu og -innhemtu öðlaðist gildi, skv. myndbandinu.

Þessar fimm kenningar eru ekki allar jafn trúverðugar, en er kenning 5 líklegust að þínu mati?

Vendetta, 25.1.2011 kl. 17:58

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ef ég ætti að giska þá myndi ég segja #2 og #5, líklega með aðkomu #4. Hvorug stofnunin hafi beinlínis átt frumkvæðið að verknaðinum heldur hafi það verið skuggastjórnvöldin sem nota bæði CIA og Fed til að halda bandarísku stjórnkerfi og þjóðfélagi í sínum heljargreipum, og eru að miklu leyti fjármögnuð af hergagnasamsteypunni. Auk þess hljóti Secret Service að hafa verið notað að einhverju leyti við framkvæmdina. Hvort FBI hafi komið nálægt er óvíst, en að mínu mati hafði stofnunin a.m.k. ekki getu til þess að framkvæma þetta ein og óstudd. Af sömu ástæðu held ég að kenningar um aðkomu mafíunnar, Kúbverja, o.þ.h. séu einum of grunnhyggnar, þeir hafi í mesta lagi verið notaðir af áðurnefndum öflum sem nytsamir þáttakendur og/eða blórabögglar.

Áður en hér fyllist allt af athusemdum frá fólki sem finnur hvöt hjá sér til að skjóta niður allar kenningar sem ekki eru gúmmístimplaðar af stjórnvöldum, þá vil ég taka fram að hér er alfarið um að ræða vangaveltur og ágiskanir. Ég held því ekki fram að ég búi yfir neinum heilögum sannleik um þetta mál sem átti sér stað löngu áður en ég fæddist. Hugsanlega munum við aldrei fá neinn endanlegan sannleika um þetta staðfestan.

Guðmundur Ásgeirsson, 25.1.2011 kl. 18:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband