Bókatíðindi?
7.12.2010 | 06:09
Árni M. Mathiesen fv. fjármálaráðherra, sagði í Kastljósi að íslensk stjórnvöld hefðu ekki getað látið flytja Icesave reikningana yfir í dótturfélag án þess að leggja fram hærri tryggingar en sem nemur nýjustu ágiskun um kostnað við hugsanlega ríkisábyrgð.
En hann gleymir því auðvitað að nefna þriðja möguleikann, þ.e. að stoppa IceSave rányrkjuna strax í fæðingu og kalla á blöffið hjá hinum löngu-gjaldþrota Landsbanka. Þess í stað leyfðist bankanum fram í rauðan dauðann að veggfóðra yfir gjaldþrot sitt með ránsfé frá útlendingum, sem gat auðvitað ekki endað öðruvísi en með harmleik.
En mikil er eftirávizka dýralæknisins...
Nú spái ég því að í kjölfar ótímabærrar útgáfu ævisögu sinnar muni talsvert verða fjallað um hann í Morgunblaðinu fram að jólum. Minna má það nú ekki vera fyrst hann reddaði syni ritstjórans vinnu þarna um árið...
Flutningur Icesave ekki bætt stöðuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: IceSave | Aukaflokkar: Spaugilegt, Viðskipti og fjármál | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.