Það þarf engin neyðarlög!

- Úrdr. úr X. kafla almennra hegningarlaga -

91. gr. Hver, sem kunngerir, skýrir frá eða lætur á annan hátt uppi við óviðkomandi menn leynilega samninga, ráðagerðir eða ályktanir ríkisins um málefni, sem heill þess eða réttindi gagnvart öðrum ríkjum eru undir komin, eða hafa mikilvæga fjárhagsþýðingu eða viðskipta fyrir íslensku þjóðina gagnvart útlöndum, skal sæta fangelsi allt að 16 árum.
Sömu refsingu skal hver sá sæta, sem falsar, ónýtir eða kemur undan skjali eða öðrum munum, sem heill ríkisins eða réttindi gagnvart öðrum ríkjum eru undir komin.
Sömu refsingu skal enn fremur hver sá sæta, sem falið hefur verið á hendur af íslenska ríkinu að semja eða gera út um eitthvað við annað ríki, ef hann ber fyrir borð hag íslenska ríkisins í þeim erindrekstri.
Hafi verknaður sá, sem í 1. og 2. mgr. hér á undan getur, verið framinn af gáleysi, skal refsað með …1) fangelsi allt að 3 árum, eða sektum, ef sérstakar málsbætur eru fyrir hendi.

Við skulum vona fyrir hönd allra hlutaðeigandi að þeir muni geta borið við gáleysi þegar þar að kemur.

P.S. Vek athygli á tengli sem ég hef bætt við til hægri á síðunni þar sem hægt er að skrifa undir vantraustsyfirlýsingu á stjórnarformann Seðlabankans. Ef meirihluti þjóðarinnar eða svo skrifar undir þá getum við hugsanlega aukið trúverðuglega þjóðarinnar örlítið. Og allir svo að setja inn linka, helst með titli, þannig að síðan með undirskriftunum fái hátt PageRank hjá leitarvélum undir leitarorðunum "David Oddsson".


mbl.is Hollensk stjórnvöld leita upplýsinga um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband