Ofbeldi á Stjórnarskrártorgi

Fyrir stundu lauk atkvæðagreiðslu í gríska þinginu um niðurskurðaraðgerðir vegna neyðarlánveitinga frá ESB/ECB/IMF þríeykinu. Eins og hér hafði verið spáð voru aðgerðirnar samþykktar með 155 atkvæðum og talsverðu magni af táragasi gegn 138 atkvæðum og háværum mótmælum tugþúsunda óánægðra borgara. Allnokkur ólæti hafa orðið þar í dag, eldar verið kveiktir og grjóti kastað í lögreglu sem hefur beitt nokkurri hörku til að halda ástandinu í skefjum.

Meðal þeirra verkfæra sem óeirðalögregla hefur notað eru færanlegar varnargirðingar úr stáli og hertu trefjaplasti, sem setja hugtakið "gegnsæi" í allsérstætt samhengi. Nú síðast fréttist að stjórnvöld hygðust láta rýma miðborgina til að bæla niður uppþot. Þegar þetta er skrifað virðist sem eitthvað hafi dregið úr látunum, en reglulega heyrast skothvellir úr táragasbyssum og lögregla hefur fullan viðbúnað.

Bein útsending frá Stjórnarskrártorgi í miðborg Aþenu

UPPFÆRT: Hér má sjá myndir af lögregluofbeldi dagsins:

 

https://lh5.googleusercontent.com/-z4T3CeRsjzk/TguIvuMbdoI/AAAAAAAAC4A/M2w2LRRgVEU/s800/syntagma-photo-gallery.jpg

Frásögn sjónarvottar:

Police makes massive attacks to anybody walking at Syntagma Square and streets beside.
They decided to suppress protests using any kind of violence.
Papandreou became the Greek Tchausesku !!!
Tear gas is nothing if compared with today’s violence.
Today they kick kids, women, old people & tourists eating at the restaurant where we have been together.
More than 200 people stay with broken legs & hands and there are not ambulances to transfer them to the hospitals.
They throw tear gas inside the metro station & inside coffee shops & restaurants, people they get out with panic and, then, police start kicking them violently.
We never saw something like in this country.
I can send you photos proving what I say.
Now people start getting very angry.
Normal middle age people protesting pacifically for 1 month at Syntagma square, now they start speaking about organized armed resistance.
They start making lists of those who keep guns home.
The real war will start now.
Papandreou is first an idiot and then a traitor.
He tries to save the bankrupt Greek bankers, killing Greeks at Syntagma Square.
He doesn’t understand that banksters like treason but they hate traitors.
They’ll fuck him very soon, in order to avoid that millions of angry & armed Greeks organize a violent bank run.
Nobody wants to say the real truth.
Deposits and Gold have been fucked !
This is the bloody secret beside the Greek bankruptcy scam.
And when bankruptcy will be officially declared, ECB will immediately block & execute the remaining deposits in the Greek banks (20 billions against 220), as they have been collateralized by the Greek Banks when they received cash against govt bonds.


mbl.is Gríska þingið samþykkti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Athyglisverður fyrirlestur. Heimasíða hans er einnig gullnáma "controversial" efnis.

Jón Steinar Ragnarsson, 1.7.2011 kl. 09:05

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Alveg ótrúlegt hvað menn geta tengt þetta einhverju trúarbragaðastríði. Einhverri leynireglu og myrkum öflum.

Ég get ekki trúað svona órum og rugli, en í máli þessara rugludalla, þá kemur alltaf eitthvað fram sem mér finnst meika sens og algerlega er ég sammála því að "The European Commission is a criminal enterprice." 

Þetta er bara ekki svona langsótt. 2+2 eru 4 ekki 5 eins og hjá þessum manni.  Völd og peningar, gamla stjórnskipulagið, aðallinn og ættarveldin eru málið.

Jón Steinar Ragnarsson, 1.7.2011 kl. 09:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband