Rafmyntagröftur er ofurtölvuþjónusta
17.4.2024 | 15:49
Ein af stjórnendum gagnaversfyrirtækisins atNorth segir í viðtengdri frétt að námugröftur eftir rafmyntum í íslenskum gagnaverum sé á undanhaldi.
Svo er haft eftir henni: Innan nokkurra mánaða verðum við hjá atNorth alveg farin úr námugreftri. Þá munum við fyrst og fremst vera í ofurtölvuþjónustu. Vissulega er orkan takmarkandi þáttur á Íslandi en við trúum að með tíð og tíma geri fleiri sér grein fyrir vægi þessa iðnaðar og viðurkenni hann sem mikilvægan útflutningsatvinnuveg.
Þetta eru frekar undarleg ummæli í ljósi þess að rafmyntagröftur er einfaldlega ein tegund ofurtölvuþjónustu. Rétt eins og hver önnur ofurtölvuþjónusta byggist rafmyntagröftur á sem mestum afköstum við nýtingu reikniafls í tölvum.
Til að keyra tölvurnar þarf raforku og orkunotkunin er í beinu hlutfalli við reikniaflið sem notað er hverju sinni. Séu tölvurnar keyrðar á hámarksafköstum til að fullnýta reikniafl þeirra er raforkunotkunin sú sama hvort sem reikniaflið er notað til að grafa eftir rafmynt, í aðrar tegundir dulkóðunar, keyrslu reiknilíkana fyrir veðurspár, til að finna lausnir á eðlisfræðiverkefnum eða hvaðeina sem ofurtölvur eru almennt notaðar í.
Það hefur því engin áhrif á raforkunotkun gagnavera hvort þau eru notuð í rafmyntagröft eða aðrar tegundir ofurtölvuþjónustu. Þess vegna er undarlegt að í fréttinni sé breyting úr einni tegund ofutölvuþjónustu yfir í aðrar sett í samhengi við raforkunotkun, þegar slík breyting er ekki til þess falin að hafa nein áhrif á raforkunotkun.
Hætta brátt námugreftri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt 18.4.2024 kl. 22:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fleiri réttindi eru í stjórnarskrá en eignarréttur
23.3.2024 | 00:30
Húseigendafélagið leggur í umsögn sinni um frumvarp um breytingar á húsleigulögum sem liggur fyrir á Alþingi, aðaláherslu á eignarrétt fasteignaeigenda sem eru leigusalar. Það er í sjálfu sér allt í lagi því sá réttur er bundinn í stjórnarskránna. Slík samtök njóta tjáningarfrelsis og mega ráða því hvernig þau haga hagsmunabaráttu sinni.
Á hinn bóginn verður einnig að taka með í reikninginn að ýmis önnur réttindi eru bundin í stjórnarskrá og mannréttindasáttmála sem íslenska ríkið hefur samþykkt. Þar á meðal rétturinn til viðunandi húsnæðis á viðráðanlegum kjörum, enda hangir lífsvirðurværi margra í samfélaginu á því, ekki síst þeirra sem minnst mega sín.
Eignarréttur eins og hann er skilgreindur í stjórnarskrá er ekki án takmarkana. Hann má til að mynda takmarka í þágu almannahagsmuna. Enginn verður þó sviptur eign sinni án þess að fá bætur fyrir og það er viðurkennt. Sem sæmi um þetta má nefna að eigendur fasteigna mega yfirleitt ekki stunda þar starfsemi sem veldur tjóni á umhverfinu eða rýrir réttindi annarra. Þessi sjónarmið hafa einnig verið staðfest í réttarframkvæmd.
Frumvarpið sem um ræðir felur ekki í sér sviptingu eignarréttar heldur aðeins skilyrði fyrir því hvernig honum sé ráðstafað. Burtséð frá því hvort frumvarpið verði samþykkt eða ekki verður eigendum íbúða áfram heimilt að eiga þær og selja eða kaupa slíkar eignir eins og þeim lystir. Lagaskilyrðin sem eru lögð til í frumvarpinu kveða eingöngu á um hvernig megi ráðstafa slíkum eignum til útleigu og fénýta þær þannig.
Þegar ein tegund réttinda vegst á við aðra tegund réttinda er alltaf skynsamlegt að leita jafnvægis þar á milli. Þess vegna er það ekki endilega stjórnarskrárbrot þó að löggjafinn reyni að stuðla að því að slíkt jafnvægi náist.
Rétturinn til húsnæðis er ekkert síður mikilvægur en eignarrétturinn. Ef sá sem þetta skrifar þyrfti að velja á milli þess að einhver verði heimlislaus og leyfa fasteignareiganda að gera hann heimilislausan, yrði sá fyrir valinu sem er í veikari stöðu. Lesendur mega svo draga sínar ályktanir um hvor það sé í þessu ímyndaða tilviki.
Það þjónar engum samfélagslegum hagsmunum að gera fólki ókleift að hafa viðunandi húsnæði. Það þjónar ekki heldur hagsmunum fasteignaeigenda að hemilislaust fólk ráfi göturnar umhverfis fasteignir þeirra og grípi jafnvel til ólöglegra örþrifaráða eins og innbrota og þjófnaða til að reyna að draga fram líf sitt. Þvert á móti er það til þess fallið að rýra hagsmuni eigenda fasteigna þegar svo er ástatt.
Eignarrétturinn er til staðar og óneitanlega mikilvægur, en kannski ekki eins einhliða og kann að virðast við fyrstu sýn. Ákveðin mannúð er ekki aðeins nauðsynleg til að byggja réttlátt og gott samfélag heldur er hún líka beinlínis stjórnarskrárbundin. Fyrir því eru góðar ástæður sem stefna að því jafnvægi sem er forsenda fyrir góðum árangri.
Húsaleigufrumvarp í trássi við stjórnarskrá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 01:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Heimildir lífeyrissjóða til að fjármagna leiguíbúðir
10.3.2024 | 21:58
Nokkuð lengi hefur verið kallað eftir því að lífeyrissjóðir komi af krafti að fjármögnun á uppbyggingu leiguíbúða til að auka framboð á húsnæðismarkaði. Lífeyrissjóðirnir hafa kvartað yfir því að þeir geti það ekki vegna of þröngra takmarkana sem ríkisvaldið hefur sett á fjárfestingarheimildir þeirra með ákvæðum VII. kafla laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Þetta hefur meðal annars verið rætt í tengslum við kjarasamninga. Í yfirlýsingu stjórnvalda frá 12. desember 2022 vegna kjarasamninga á almennum vinnumarkaði kom fram að stjórnvöld myndu á samningstímabilinu finna leiðir til að auðvelda lífeyrissjóðum að koma að fjármögnun á íbúðarhúsnæði til útleigu til einstaklinga með því að rýmka heimildir sjóðanna til fjárfestinga í leigufélögum.
Afraksturinn af þessu eru drög að frumvarpi sem hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Þar er lagt til að lífeyrissjóðum verði "heimilt að binda allt að 5% heildareigna í hlutabréfum og skuldabréfum, sem ekki eru skráð á skipulegan verðbréfamarkað, útgefin af félögum þar sem meginstarfsemin er langtímaleiga íbúðarhúsnæðis til einstaklinga", sem og í fjárfestingasjóðum sem fjárfesta eingöngu í slíkum bréfum.
Í árslok 2023 námu heildareignir lífeyrissjóða um 7.287 milljörðum króna en fasteignamat íbúðarhúsnæðis á landinu öllu samtals 10.596 milljörðum króna. Miðað við þær stærðir gætu lífeyrissjóðir í mesta lagi fjármagnað um 3,4% íbúðarhúsnæðis á landinu, verði frumvarpið óbreytt að lögum með þessari takmörkun.
Eins og svo margt sem stjórnvöld lofa í tengslum við kjarasamninga er þetta óþolandi seint fram komið og þar að auki í mýflugumynd. Það er harla ólíklegt að svona lágt hlutfall geti haft eins mikil áhrif til að auka framboð á húsnæði og raunverulega er þörf fyrir. Þess vegna væri full ástæða til að rýmka þetta hlutfall verulega og vonandi verður hugað að slíkri breytingu við meðferð frumvarpins á Alþingi.
Vill auka fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 22:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Hunsa þunga fjárhagsstöðu (allra hinna) heimilanna
20.10.2023 | 17:05
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að koma á fót starfshópi til að bregðast við erfiðri fjárhagsstöðu bænda vegna verðbólgu og vaxtahækkana.
Sjá tilkynningu: Ráðuneytisstjórahópur skipaður vegna fjárhagsstöðu bænda
Enginn slíkur starfshópur hefur verið skipaður til að bregðast við erfiðri fjárhagsstöðu allra hinna heimilanna, sem er til komin af nákvæmlega sömu ástæðum. Tekið skal fram að sá sem þetta skrifar hefur fulla samúð með stöðu bænda, en þætti jafnframt betra ef ríkisstjórnin sýndi jafn mikla samúð með stöðu allra hinna heimilanna.
Til að gefa ákveðna hugmynd af því hvernig tilkynningin gæti litið út ef ríkisstjórninni væri jafnt umhugað um stöðu allra heimila, kom upp sú hugmynd að endurskrifa hana með þeirri einu breytingu að skipta sérstökum tilvísunum til bænda og landbúnaðar út fyrir almennar tilvísanir til heimilanna í landinu:
Ríkisstjórn Íslands samþykkti í morgun að koma á fót starfshópi ráðuneytisstjóra þriggja ráðuneyta; matvæla menningar- og viðskiptaráðuneytisins, fjármála- og efnahagsráðuneytisins og innviðaráðuneytisins. Hópurinn mun leggja mat á þá stöðu sem upp er komin í landbúnaði hjá heimilunum í kjölfar endurtekinna hækkana á stýrivöxtum og verðhækkana á aðföngum.
Höfuðstóll verðtryggðra lána hefur hækkað hratt síðustu misseri og þannig rýrt eiginfjárstöðu bænda heimilanna eins og víðar í samfélaginu. Staða landbúnaðar heimilanna er þó sérlega erfið að því leyti að rekstur búa húsnæðis er nátengdur heimilum bænda mannréttindavörðum lífsskilyrðum þeirra og hækkanir við fjármagnskostnað og aðfangaverð hafa haft íþyngjandi áhrif. Rekstur í landbúnaði heimila er því orðinn þungur hjá mörgum framleiðendum einstaklingum og fjölskyldum.
Starfshópurinn mun draga saman nýjustu gögn um stöðuna og þróun síðustu missera.
Í framhaldinu verða lagðar fram tillögur með hliðsjón af þessum gögnum og jafnframt leiða leitað til að auðvelda kynslóðaskipti og nýliðun í landbúnaði einstaklingum og fjölskyldum að halda viðunandi heimili. Hópurinn mun verða í samráði við Byggðastofnun opinberar stofnanir og önnur fjármálafyrirtæki auk hagsmunaaðila í landbúnaði heimilanna.
Nú hlýtur það að vera réttmæt krafa allra heimila í landinu að jafnræðis verði gætt og samskonar starfshópur skipaður til að bregðast við erfiðri fjárhagsstöðu þeirra.
Fjalla um þunga fjárhagsstöðu bænda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Verðbólguhvetjandi vaxtahækkanir
29.9.2023 | 15:59
Geta vaxtahækkanir aukið verðbólgu? Skoðum málið.
Það sem maður er orðinn mjög hugsi yfir er það hvernig reiknaða húsaleigan hefur áhrif á verðbólguna eins og hún mælist í dag. En okkur sýnist að rúmt prósent af þessari átta prósenta verðbólgumælingu leiði af reiknaðri húsaleigu sem að aftur endurspeglar vaxtahækkanir, segir Bjarni [Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra] við mbl.is eftir ríkisstjórnarfund í dag.
Spurður nánar um þetta segir hann að vinna við að endurskoða húsnæðisliðinn hafi staðið yfir. Það er að mínu áliti orðið mjög brýnt að við ljúkum þeirri endurskoðun. Þar sem mér sýnist sú aðferð sem notuð er í dag til að komast að niðurstöðu um hina reiknuðu húsaleigu sé að valda ákveðinni bjögun í verðbólgumælingu.
Með öðrum orðum er hækkun á einum af undirliðum vísitölu neysluverðs að endurspegla vaxtahækkanir og valda ákveðinni bjögun í verðbólgumælingum. Þessi undirliður heitir "reiknuð húsaleiga" en hann samanstendur af annars vegar húsnæðisverði og hins vegar svokölluðum vaxtaþætti sem tekur mið af því hversu háa vexti heimilin þurfa að greiða af húsnæðislánum sínum.
Þessu ummæli eru athyglisverð í ljósi þess að ýmsir talsmenn hagsmuna almennings og heimilanna hafa í langan tíma verið að benda á að miklar vaxtahækkanir séu beinlínis til þess fallnar að kynda undir verðbólgubálinu. Fyrirtæki sem standa frammi fyrir auknum vaxtakostnaði eru jú líkleg til að velta þeim aukna kostnaði út í vöruverð sem veldur því að verðbólga mælist hærri en ella.
Þessu hafa talsmenn peningastefnunnar og varðhundar fjármagnsaflanna hafnað og vísað því á bug að vaxtahækkanir geti verið verðbólguhvetjandi.
Nýlega fóru svo sjónir málsmetandi aðila að beinast í auknum mæli að þessum umrædda lið í verðbólgumælingum sem kallast "vaxtaþáttur reiknaðrar húsaleigu". Á mannamáli er hægt að útskýra þetta þannig að húsnæðisliðurinn í vísitölu neysluverðs er samansettur af annars vegar greiddri húsaleigu (leiguverði) og hins vegar fyrrnefndri reiknaðri húsaleigu sem inniheldur umræddan vaxtaþátt. Það þýðir að þegar vextir hækka hafa þeir beinlínis áhrif til hækkunar á vísitölu neysluverð sem í daglegu tali er kallað verðbólga.
Tilvitnuð ummæli fjármála- og efnahagsráðherra eru ekki eina staðfestingin sem hefur komið fram nýlega á því að miklar vaxtahækkanir séu beinlínis að ýta undir verðbólguna. Grípum niður í Korn Íslandsbanka frá því í gær 28. september 2023:
"Vísitala neysluverðs (VNV) hækkaði um 0,35% í september samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar. ..."
"Það helsta sem vegur til hækkunar í septembermánuði er húsnæðisliðurinn. Liðurinn í heild hækkar um 0,7% (0,21% áhrif á VNV) þar sem greidd húsaleiga hækkar um 0,9% (0,03% áhrif á VNV) og reiknuð um 0,9% (0,16% áhrif á VNV). Innan reiknuðu húsaleigunnar er það markaðsverð íbúðarhúsnæðis sem hækkar um 0,3% og vaxtaþátturinn um 0,6%."
Með öðrum orðum voru 45,7% af hækkun vísitölunnar (0,16% af 0,35%) vegna reiknaðrar húsaleigu og tveir þriðju hlutar af því (0,6% af 0,9%) beinlínis vegna vaxtaþáttarins, eða um 30,5% af þeirri hækkun sem varð á vísitölunni.
Þessi áhrif mátti reyndar sjá nokkuð vel í Hagsjá Landsbankans 28. júní síðastliðinn, en þar kom fram myndrit sem sýnir glögglega að framlag vaxtabreytinga hefur beinlínis valdið auknum hækkunum á vísitölu neysluverðs í hverjum mánuði frá því í september í fyrra.
Til að taka þetta saman þá hafa vaxtahækkanir undanfarið ár beinlínis verið að valda aukinni verðbólgu, þvert gegn þeim yfirlýstu markmiðum þeirra að þær eigi að vera til að draga úr verðbólgu!
Alveg sama hvað sértrúarsöfnuðurinn í seðlabankanum reynir að afneita þessari staðreynd liggur þetta ljóst fyrir í opinberri tölfræði.
Ef við gefum okkur að 30% af mældri ársverðbólgu megi rekja til vaxtahækkana (sem er vissulega gróft mat því þetta sveiflast milli mánaða) þá ætti mæld verðbólga að vera mun lægri eða jafnvel ekki nema 5,6% í stað 8% ef leiðrétt væri fyrir vaxtaþættinum
Það er þó ánægjulegt að fjármála- og efnahagsráðherra virðist vera núna fyrst að átta sig á þessu. Spurningin er bara hvað mun hann gera í því? Ætlar hann að beina þeim tilmælum til seðlabankans að láta af vaxtabrjálæðinu og lækka vexti til að lækka vaxtaþáttinn í vísitölu neysluverðs og slá þannig á verðbólguna? Ætlar hann að bæta heimilunum þann skaða sem þau hafa hlotið af þessum hagstjórnarmistökum með einhverjum hætti?
Svör óskast.
Sér ekki fram á vaxtalækkun strax | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 17:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Meintar "vinsældir" verðtryggðra lána
5.4.2023 | 17:14
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 22:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Lækkið þá vextina!
8.2.2023 | 22:08
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 23:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Til hamingju með daginn!
28.1.2023 | 20:05
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Gleðilega hátíð ljóss og friðar!
24.12.2022 | 17:15
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eru bankar eins og hraðfrystihús?
8.12.2022 | 17:17
Hér er leiðin
28.11.2022 | 13:26
Fasteignagjöld hækka um 21,7% í Reykjavík
1.11.2022 | 15:54
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Viðurkenning á skattsvikum?
1.9.2022 | 21:36
Hvenær er óheimilt að skrá vanskil?
13.8.2022 | 19:17
Viðskipti og fjármál | Breytt 14.8.2022 kl. 01:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fyrningarreglur eftir gjaldþrot
1.6.2022 | 21:57
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 22:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)