Föstudagurinn þrettándi

Nákvæmlega 39 dagar hafa liðið frá því að matsfyrirtækið S&P setti öll evruríkin í heild sinni á athugunarlista með neikvæðum horfum. Í dag raungerðust þessar horfur þegar lánshæfismat Frakklands og Austurríkis var lækkað um eitt þrep og nokkurra annara ríkja um tvö þrep. Horfur eru  samkvæmt matinu neikvæðar í öllum tilfellum, nema Þýskalands sem heldur hæstu einkunn AAA ásamt Finnlandi, Hollandi og Luxembourg.

Fyrir 38 dögum barst svo önnur fréttatilkynning frá S&P:

  • Fjármálastöðugleikasjóður evrusvæðisins settur á athugunarlista með neikvæðar horfur um langtímaeinkunn (AAA).
  • Helmingslíkur á lækkun lánshæfiseinkunnar innan 90 daga.
  • Tekur mið af því að öll ríkin 17 sem ábyrgjast sjóðinn voru í gær sett á athugunarlista með neikvæðar horfur.
  • Óhagstætt heildarendurmat á lánshæfi evrusvæðisins gæti leitt til lækkunar EFSF um eitt til tvö þrep (AA+/AA).
  • Endurskoðuð einkunn EFSF mun taka mið af lægstu einkunn meðal þeirra ríkja sem áður höfðu hæstu einkunn (AAA).
  • Frakkland (AAA) gæti lækkað um allt að tvö þrep (AA).

Stöðugleikasjóðurinn hlutafélagið EFSF er í raun aðeins lítt dulbúin vafningur misjafn að gæðum, sem reynt er að fá hæstu einkunn á svo hann verði veðhæfur í endurhverfum viðskiptum hjá seðlabanka gegn lausafjárfyrirgreiðslu. Reynist vafningurinn svo í reynd innihalda verðlausar eignir jafngilda slík viðskipti hinsvegar peningaprentun, sem brýtur í bága við stofnsamþykktir evrópska seðlabankans.

Veruleikinn er auðvitað sá að fjármögnun sjóðsins hvílir á sömu ríkjunum og honum er ætlað að koma til bjargar þegar á reynir, sem er álíka raunhæft og að Barón Munchhausen hafi dregið sjálfan sig upp á hárinu. Talsvert er síðan S&P áttaði sig á þessu og hóf að líta svo á að lánshæfi EFSF sé beintengt undirliggjandi lánshæfi aðildarríkjanna.

Þar sem Frakkland var meðal þeirra ríkja sem höfðu hæstu einkunn en er nú komið niður í næst efsta flokk með neikvæðum horfum, er það mat núna orðið nýtt viðmið fyrir endurskoðun lánshæfismats EFSF. Í tilkynningunni voru ekki gerðir neinir fyrirvarar við þessa nálgun, heldur einfaldlega gefið sterklega í skyn að ef lánshæfi Frakklands lækki muni stöðugleikasjóðurinn, hvers heiti er jafnframt fullkomið öfugmæli, hljóta sömu örlög.

Það skyldi enginn velkjast í vafa um að tímasetning tilkynningarinnar, við lokun markaða á föstudeginum þrettánda, sé fjarri því að vera tilviljun heldur sérvalin til þess að lágmarka skelfingarviðbrögð fjárfesta. Og í sömu andrá fréttist af því að slitnað hafi upp úr nauðasamningum Grikkja við lánadrottna sína, líklega í tuttugasta skipti sem það gerist. Þegar ný vika rennur upp verður forvitnilegt að fylgjast með því hvort S&P lætur kné fylgja kviði og kveður upp dauðadóm yfir evrunni, eða fórnar leifum trúverðugleika síns til að viðhalda þessum óstöðugleika eilítið lengur.

http://tadees.com/SBL/img/emotes/thEmoticons-EatingPopcorn.gif

mbl.is Lánshæfismat evruríkja lækkað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Talandi um (ó)stöðugleika:

"Fengið að láni" frá Viðskiptablaðinu, með þökkum.

Guðmundur Ásgeirsson, 14.1.2012 kl. 02:39

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Með vöxtum Guðmundur?

Helga Kristjánsdóttir, 14.1.2012 kl. 05:58

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Helst ekki...

Guðmundur Ásgeirsson, 14.1.2012 kl. 15:46

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ítalía var lækkuð um tvo heila flokka í BBB+

http://www4.pictures.zimbio.com/gi/Cruise+Ship+Costa+Concordia+Runs+Aground+Off+Cym7s9FP1vQl.jpg

Guðmundur Ásgeirsson, 16.1.2012 kl. 05:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband