Kærum þjóðernisofsóknir Breta!

Í fréttinni og grein nafna míns Frímannssonar kemur fram það sama og ég er búinn að vera að reyna að benda á: Glæpsamlegar aðgerðir Bretanna beindust sértækt gegn fyrirtækjum sem áttu það eitt sameiginlegt að vera kennd við sama þjóðernið, þar með meginhluti starfsfólksins líka og ekki síst eigendurnir. Afleiðingarnar af þessum harkalegu aðgerðum koma svo aðallega niður á einni þjóð, þeirri sömu og aðgerðirnar beindust gegn! Hvað er þetta annað en ofsóknir á grundvelli þjóðernis?

Við sem þjóð getum ekki sætt okkur við að sitja undir ofsóknum annars ríkis, og því væri að mínu mati réttast að:

KÆRA GORDON BROWN TIL ALÞJÓÐLEGA STRÍÐSGLÆPADÓMSTÓLINS!!!

Guð blessi Ísland.


mbl.is Segir aðgerðir Breta bera keim af útlendingahatri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband