Varaliðið var til staðar! Björn afglapi eða fasisti?

Allan tímann sem hjálparstarf stóð yfir var til staðar öflugt borgaralegt varalið skipað sjálfboðaliðum. Með því á ég við alla þá íbúa hér á Suðvesturhorninu sem héldu sig á mottunni á meðan stór hluti lögregluliðsins var upptekinn fyrir austan fjall. Ég veit ekki til þess að það hafi þurft að kalla neinn út sérstaklega til þess að allt færi friðsamlega fram rétt eins og á venjulegum degi, enda var okkur Reykvíkingum líka brugðið við hristinginn og hugur flestra hjá íbúum Suðurlandsundirlendisins. Við Íslendingar erum nefninlega aldrei samhentari heldur en einmitt þegar náttúruöflin sýna okkur mátt sinn og megin, af því megum við sko vera stolt. Sjálfur fór ég t.d. út úr bænum og hélt norðaustur á bóginn þar sem löggurnar voru síst uppteknar vegna jarðskjálfta enda var víða sýnilegt umferðareftirlit á vegunum. Eins og fram kom annarsstaðar á blogginu þá væri miklu meira vit í að styrkja og efla hjálparsveitirnar sjálfar, frekar en að fjölga þessum blessuðu laganna "vörðum" sem ráðast svo kannski bara á unglinga í kjörbúðum, spreyja piparúða framan í saklaust fólk á bensínstöðvum, fara með samsæri og tilhæfulausum ásökunum gegn fólki sem þorir að segja upphátt skoðun sína á umhverfismálum, hnýsast ítrekað með ólöglegum hætti í stjórnarskrárvarið einkalíf fólks, og almennt hafa grundvallarréttindi samborgaranna að engu. Af slíkum óþverravinnubrögðum íslenskrar lögreglu hef ég ítrekaða persónulega reynslu af misslæmu tagi auk þess sem öll tilvikin sem ég nefndi hér á undan eru staðfest og skjöluð!. Þar sem ekki hefur verið sýnt fram á annað verður maður að taka þessi ummæli Björns eins og hvern annan fasista-áróður sem hann lætur frá sér fara, og í þetta sinn af fullkomnu virðingarleysi fyrir því áfalli sem dundi á Sunnlendingum. Megi það verða honum til ævarandi minnkunar að hafa ætlað að nota þessar hamfarir sem enn eitt tilefnið til slíkrar áróðursstarfsemi fyrir öfgasinnaðri hugmyndafræði sinni. Fyrst honum þykir hugmyndir um lögregluríki svona heillandi ætti hann bara að flytja vestur um haf í það "sæluríki" öfganna og láta okkur friðelskandi Íslendinga í friði, um aldur og ævi!!! A.m.k. ráðlegg ég honum að vera ekkert að heimsækja Selfyssinga á næstunni... ég held þeir vilji miklu frekar fá aðstoð við að laga húsin sín en fá yfir sig meiri löggufasisma en nú þegar viðgengst hér á landi.

Ég hef því ákveðið að nota þennan vettvang til að skora formlega á Björn Bjarnason að segja af sér öllum embættis- og ábyrgðarstörfum fyrir íslensku þjóðina enda sé hann stórlega vanhæfur sökum fasisma er jaðri hugsanlega við áráttu- og þráhyggjusýki. Geti einhver sýnt fram á annað er skorað á viðkomandi að liggja ekki á mikilvægum upplýsingum um það heldur koma þeim hér á framfæri! Þar sem um er að ræða dómsmálaráðherra er þetta tvímælalaust mál sem varðar öryggi þjóðarinnar og þessi fjölmiðill birtist opinberlega hverjum þeim sem lesa vill. Baráttunni er ekki lokið!


mbl.is Heimild til að kalla út varalið hefði komið sér vel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Alfreð Símonarson

Heyr Heyr!

Alfreð Símonarson, 2.6.2008 kl. 13:55

Bæta við athugasemd

Hver er summan af átta og sjö?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband