Árangur NEI-hreyfingar án hliđstćđu

Lög nr. 96/2009 um heimild til handa fjármálaráđherra, fyrir hönd ríkissjóđs, til ađ ábyrgjast lán Tryggingarsjóđs innstćđueigenda og fjárfesta frá breska og hollenska ríkinu til ađ standa straum af greiđslum til innstćđueigenda hjá Landsbanka Íslands hf. (fyrstu IceSave lögin) hafa nú veriđ felld úr gildi međ einróma samţykki 45 ţingmanna.

Ţar međ hefur orđiđ ađ ţví er virđist 180° gráđu viđsnúningur í afstöđu meirihluta ţingheims. Auk ţess hefur eitt sundurlyndasta ţing sem setiđ hefur, sameinast sem einn mađur um framhald málsins og varnir Íslands gegn áhlaupi hinna gömlu nýlenduvelda Bretlands og Hollands, sem hafa nú ađeins tvo valkosti: Ađ hverfa frá málinu međ skottiđ á milli lappanna, eđa knýja fram dómafordćmi fyrir margföldun skuldbindinga í ţjóđhagsreikningum sínum međ ófyrirsjáanlegum áhrifum á efnahagslíf álfunnar.

Ţó ađ ótímabćrt sé á ţessu stigi ađ lýsa yfir fullnađarsigri ţá er engu ađ síđur ljóst ađ árangur NEI-hreyfingarinnar á sér engar hliđstćđur í sögu íslenskra stjórnmála.

Svo er annar flötur á ţessu sem hefur minna boriđ á en ţađ er samhengiđ milli niđurstöđunnar í IceSave og stöđu Landsbankans (NBI) sem er í meirihlutaeigu ríkisins en djúpt skuldsettur ţrotbúinu sem Bretar og Hollendingar munu skipta á milli sín. Skuldabréf bankans viđ skilanefndina inniheldur nefninlega verđbreytingarákvćđi sem eru beintengd viđ heimtur af lánasöfnum nýja bankans. Samkvćmt hlutafélagalögum er stjórn bankans skylt ađ ţjóna hagsmunum hluthafa eđa meirihluta ţeirra sem er í ţessu tilviki ríkissjóđur. Á međan ţađ var ćtlun stjórnvalda ađ veita ríkisábyrgđ fyrir kröfum í ţrotabú gamla Landsbankans ţá var ţađ beinlínis í ţágu ţeirra hagsmuna ađ ţćr endurheimtur sem á endanum skiluđu sér til ţrotabúsins, yrđu sem mestar. Eftir ađ veitingu ríkisábyrgđar var hafnađ af ţjóđinni hafa ţessir hagsmunir hinsvegar snúist viđ, ríkissjóđur hefur enga hagsmuni af innheimtustörfum fyrir Breta og Hollendinga, heldur fyrst og fremst af ţví ađ bćta stöđu skattgreiđenda. Ţar til skynsamlegri skýring kemur fram verđa nýleg og róttćk skuldalćkkunarúrrćđi Landsbankans ađ skođast í ţessu ljósi, tímasetningin er í ţađ minnsta athyglisverđ.

Einnig má merkja breytingu á tíđarandanum, ţví nýfallinn dómur í svokölluđu Motormax máli um ólögmćti gengistryggđra fyrirtćkjalána Landsbankans virđist ekki hafa valdiđ nćrri ţví jafn miklum taugatitringi og sambćrilegur dómur um bílalán einstaklinga gerđi í fyrra, jafnvel ţó nú séu einnig miklir hagsmunir í húfi. Landsbankinn hefur meira ađ segja strax bođiđ viđskiptavinum sem verđa fyrir áhrifum af dómnum ađ borga bara 55% af mánađargreiđslu á međan veriđ er ađ endurreikna lánin.

Nćst ţarf ađ afnema ólög nr. 151/2010 um endurútreikning gengistryggđra lána ţar sem komiđ hefur í ljós ađ ţau eru svo flókin ađ enginn virđist geta fariđ eftir ţeim.

Til glöggvunar er hér yfirlit atkvćđa einstakra ţingmanna um IceSave lögin á sínum tíma, og svo núna um afnám ţeirra:

nafnlög nr. 96/2009afnám sömu laga
Anna Margrét Guđjónsdóttir - já
Atli Gíslason fjarverandi
Álfheiđur Ingadóttir já
Árni Páll Árnason já
Árni Johnsennei já
Árni Ţór Sigurđsson fjarverandi
Ásbjörn Óttarssonpass já
Ásmundur Einar Dađason fjarverandi
Ásta R. Jóhannesdóttir já
Baldur Ţórhallsson - já
Birgir Ármannssonnei já
Birgitta Jónsdóttirnei fjarverandi
Birkir Jón Jónssonnei -
Bjarkey Gunnarsdóttir -
Bjarni Benediktssonpass fjarverandi
Björgvin G. Sigurđsson já
Björn Valur Gíslason já
Einar K. Guđfinnssonpass fjarverandi
Eygló Harđardóttirnei já
Guđbjartur Hannesson já
Guđfríđur Lilja Grétarsdóttir já
Guđlaugur Ţór Ţórđarsonpass já
Guđmundur Steingrímssonnei fjarverandi
Gunnar Bragi Sveinssonnei já
Helgi Hjörvar já
Huld Ađalbjarnardóttir - já
Höskuldur Ţórhallssonnei fjarverandi
Íris Róbertsdóttir
 - já
Illugi Gunnarssonfjarverandi -
Jóhanna Sigurđardóttir já
Jón Bjarnason já
Jón Gunnarssonpass fjarverandi
Jónína Rós Guđmundsdóttir já
Katrín Jakobsdóttir -
Katrín Júlíusdóttir já
Kristján Ţór Júlíussonpass já
Kristján L. Möller já
Lilja Rafney Magnúsdóttir já
Lilja Mósesdóttir fjarverandi
Magnús Orri Schram já
Margrét Tryggvadóttirnei já
Oddný G. Harđardóttir -
Ólína Ţorvarđardóttir já
Ólöf Nordalpass fjarverandi
Pétur H. Blöndalpass já
Ragnheiđur E. Árnadóttirpass já
Ragnheiđur Ríkharđsdóttirpass já
Róbert Marshall já
Sigmundur Davíđ Gunnlaugssonnei fjarverandi
Sigmundur Ernir Rúnarsson já
Sigríđur Ingibjörg Ingadóttir já
Sigurđur Ingi Jóhannssonnei já
Sigurđur Kári Kristjánsson
 - já
Siv Friđleifsdóttirnei fjarverand
Skúli Helgason já
Steingrímur J. Sigfússon fjarverandi
Steinunn Valdís Óskarsdóttir -
Svandís Svavarsdóttir já
Tryggvi Ţór Herbertssonpass já
Unnur Brá Konráđsdóttirpass -
Valgerđur Bjarnadóttir já
Vigdís Hauksdóttirnei fjarvist
Ţorgerđur K. Gunnarsdóttirpass já
Ţór Saaripass fjarverandi
Ţórunn Sveinbjarnardóttir já
Ţráinn Bertelssonnei fjarverandi
Ţuríđur Backman
 -
Ögmundur Jónasson já
Össur Skarphéđinsson fjarverandi


mbl.is Fyrstu Icesave-lögin fallin brott
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Óskar Ingvarsson

Bestu ţakkir Guđmundur, fyrir ţessa frábćru úttekt á sögu málsins og stöđu ţess. Óskandi vćri ađ mađur gćti fengiđ svonalagađ frá fréttamönnum, en ţađ held ég ađ sé alveg borin von.

Magnús Óskar Ingvarsson, 13.6.2011 kl. 21:50

2 Smámynd: Guđmundur Ásgeirsson

Meinar ţú ekki ađ óskandi vćri ađ fá svonalagađ frá atvinnufréttamönnum? Ég vil vekja athygli ţína á ţví ađ ég fjármagna ekki bloggsíđuna mína međ auglýsingum né rukka lesendur fyrir afnotin. Ef ţú vilt hinsvegar fá "svonalagađ" frá atvinnumanni ţá ég hef aldrei vikist undan ţví ađ fá greidda sanngjarna ţóknun fyrir ţá miklu vinnu sem ég legg á mig til ađ berjast fyrir réttlćti og hagsmunum almennings. Ţađ hefur hinsvegar ekki gerst hingađ til ađ mér hafi veriđ bođin greiđsla fyrir ţađ.

Ţađ er alls ekkert borin von ađ breyta kerfinu ef ţú ert tilbúinn ađ hrinda ţví í framkvćmd, en ţađ er hinsvegar borin von ađ kerfiđ breyti sér sjálft. Eđli allra kerfa er ađ viđhalda sjálfum sér, annars vćru ţau ekki til.

En líklegast er samt ađ ţú haldir áfram ađ lesa auglýsingabćklinginn sem kemur inn um bréfalúguna ţína undir yfirskini fréttablađs, og borga fyrir sjónvarpsefni ţar sem ţú getur horft á meiri auglýsingar. Međ ţeim afleiđingum ađ ţeir sem hingađ til hafa fengiđ greitt fyrir annars flokks upplýsingamiđlun munu halda áfram ađ fá greitt fyrir hana.

Ţannig virkar kerfiđ.

Guđmundur Ásgeirsson, 14.6.2011 kl. 10:46

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband